Erlent

Fimm létust í átökum í Úkraínu

vísir/afp
Fimm létu lífið eftir að til átaka kom á milli uppreisnarhermanna hliðhollir Rússum og Úkaínumanna skammt frá borginni Slavyansk í austurhluta Úkraínu. Rússneska ríkissjónvarpið greinir frá þessu.

Hópur vopnaðara Úkraínumanna lagði til atlögu með þeim afleiðingum að fimm féllu, þrír úr liði fylgjenda Rússa og tveir Úkraínumenn.

Uppreisnarhermenn sem styðja Rússa hafa hertekið opinberar byggingar víða í austurhluta Úkraínu og neita að yfirgefa þær þrátt fyrir alþjóðlegan samning sem var undirritaður á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×