Körfubolti

Fimm leikmenn landsliðsins að fylgja í fótspor pabba

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Axel Kárason, Logi Gunnarsson, Martin Hermannssin, Pavel Pavel Ermolinskij og Elvar Már Friðriksson.
Axel Kárason, Logi Gunnarsson, Martin Hermannssin, Pavel Pavel Ermolinskij og Elvar Már Friðriksson. Mynd/KKÍ/Kristinn Geir Pálsson
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta er nú statt út í Lúxemborg þar sem liðið spilar tvo æfingaleiki við heimamenn en þetta er lokaundirbúningur íslenska liðsins fyrir Evrópukeppnina. Ísland vann sannfærandi fjórtán stiga sigur í fyrsta leiknum.  

Á heimasíðu KKÍ kemur fram að í tólf manna hóp íslenska liðsins eru fimm synir fyrrverandi landsliðsmanna og þar á meðal er Logi Gunnarsson sem lék sinn hundraðasta leik í gær.

Logi Gunnarsson er sonur Gunnars Þorvarðarsonar (Njarðvík) sem lék 69 landsleiki á árunum 1974 til 1981 en Logi sem fæddist 1981 lék sinn hundraðasta landsleik í gær. Logi verður heiðraður í Laugardalshöllinni þann 10. ágúst fyrir leikinn gegn Bretlandi í undankeppni EuroBasket 2015.

Axel Kárason er sonur Kára Marissonar (Valur, Njarðvík) sem lék 34 leiki fyrir íslenska landsliðið á árunum 1972 til 1976.

Þeir félagar Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson, sem eru báðir á leið til LIU í New York í haust, eru synir þeirra Friðriks Ragnarssonar (Njarðvík, KR), sem lék 31 landsleik milli 1989-1999, og Hermanns Haukssonar (KR, Njarðvík) sem lék 64 landsleiki á árunum 1994-2000.

Faðir Pavels Ermolinskij, Alexander, lék 6 landsleiki fyrir Ísland þegar hann var leikmaður ÍA árið 1997 en Alexander tók þá upp íslenskt ríkisfang. Alexander Ermolinskij var upprunalega frá Rússlandi.

Samtals hafa synirnir fimm leikið 187 landsleiki og feðurnir léku á sínum tíma 204. Eftir ferðina til Lúxemborg verður staðan hinsvegar orðin 192:204 og munurinn gæti síðan minnkað ennfrekar í Evrópukeppninni í haust.


Tengdar fréttir

Jón Arnór verður ekki með í Lúxemborg

Besti körfuknattleiksmaður landsins fékk frí vegna persónulegra ástæðna og fer því ekki með í æfingaferðina en mætir til leiks í undankeppni EM.

Logi stigahæstur í sigri á Lúxemborg

Logi Gunnarsson, skotbakvörðurinn úr Njarðvík lék sinn 100 landsleik fyrir Íslands hönd í kvöld og var hann stigahæstur leikmanna Íslands með 19 stig i fjórtán stiga sigri á Lúxemborg.

Hlutirnir stefna í rétta átt

Íslenska landsliðið í körfuknattleik leikur sína fyrstu landsleiki undir stjórn Kanadamannsins Craig Pedersen sem tók við landsliðinu fyrr á árinu á næstu dögum. Pedersen var nokkuð brattur þegar Fréttablaðið heyrði í honum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×