Innlent

Fimm konur í sjö efstu sætum á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Ásgerður Halldórsdóttir leiðir lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi.
Ásgerður Halldórsdóttir leiðir lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi. Fréttablaðið/GVA
Fimm konur eru í sjö efstu sætum á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi Niðurstöður prófkjörsins liggja nú fyrir og voru gerðar opinberar á Facebooksíðu Sjálfstæðisfélags Seltirninga.

Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness, leiðir listann. Hún tók við embætti bæjarstjóra árið 2009 af Jónmundi Guðmarssyni. Ásgerður hlaut ör­ugga kosningu að því er fram kemur í fréttatilkynningu eða 463 at­kvæði af 711. 

Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi eru eftirfarandi:

  1.  Ásgerður Halldórsdóttir
  2.  Magnús Örn Guðmundsson
  3.  Sigrún Edda Jónsdóttir
  4.  Bjarni Torfi Álfþórsson
  5.  Ragnhildur Jónsdóttir
  6.  Sigríður Sigmarsdóttir
  7.  Guðrún Jónsdóttir
Greidd atkvæði voru 711 en þar af voru 26 seðlar auðir og ógildir. Talin atkvæði voru því 685.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×