Handbolti

Fimm íslensk mörk í öðrum sigri Bergischer í röð | Úrslit dagsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Arnór Þór skoraði fimm mörk í leiknum í dag.
Arnór Þór skoraði fimm mörk í leiknum í dag. vísir/getty
Arnór Þór Gunnarsson, Björgvin Páll Gústavsson og félagar í Bergischer unnu 27-25 sigur á Minden í þýsku deildinni í handbolta í dag.

Eftir fjóra tapleiki í röð náði Bergischer fyrsta sigri vetrarins í síðustu umferð og fylgdu þeir því eftir með fyrsta heimasigri tímabilsins.

Arnór Þór skilaði fimm mörkum í sigrinum en Björgvin Páll varði alls tólf skot í leiknum, þar af eitt víti með 32,43% markvörslu.

Í öðrum leikjum dagsins vann Melsungen 31-27 sigur á Goppingen og Stuttgart 26-23 sigur á Coburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×