Handbolti

Fimm íslensk mörk í mikilvægum sigri Nice

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Arna Sif í leik með íslenska landsliðinu.
Arna Sif í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Valli
Karen Knútsdóttir, Arna Sif Pálsdóttir og félagar í Nice unnu mikilvægan þriggja marka sigur Nantes í frönsku úrvalsdeildinni í handknattleik dag.

Nice þurfti nauðsynlega á sigrinum að halda eftir fjóra leiki í röð án sigurs en síðasti sigurleikur liðsins kom þann 4. september.

Nice hafði undirtökin í fyrri hálfleik og leiddi 14-13 í hálfleik. Tókst þeim að bæta við forskotið í seinni hálfleik og unnu að lokum þriggja marka sigur, 30-27.

Kareni tókst að setja þrjú mörk í sex tilraunum og þá bætti Arna Sif við tveimur mörkum úr fjórum skottilraunum.

Næsti leikur liðsins er gegn Metz sem situr í 2. sæti frönsku deildarinnar að sex leikjum loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×