Fótbolti

Fimm Íslendingar í byrjunarliði Viking

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn fyrir Viking í dag.
Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn fyrir Viking í dag. Viking
Sverrir Ingi Ingason, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Björn Daníel Sverrisson, Indriði Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson voru allir í byrjunarliði Viking sem bar sigurorð af FK Haugesund í fjórðu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag, en þetta var í fyrsta sinn á tímabilinu sem það gerist.

Og mörkin í leiknum voru íslensk. Sverrir kom Viking á bragðið með marki eftir 26. mínútna leik og Steinþór Freyr tvöfaldaði forystuna 14 mínútum seinna. Fleiri urðu mörkin ekki og Viking fagnaði því 2-0 sigri, en liðið situr er sem stendur á toppi norsku úrvalsdeildarinnar með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×