Lífið

Fimm her­bergja pent­house­draumur á Hverfis­götu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Æðisleg eign á besta stað.
Æðisleg eign á besta stað. vísir
Fasteignasalan Eignamiðlun er með glæsilega fimm herbergja penthouse íbúð á fjórðu hæð á horni Hverfisgötu og Vatnsstígs á söluskrá.

Íbúðin er skráð 181,4 fermetrar og er í steinsteyptu húsi, byggt árið 1930. Aðeins er ein íbúð á hæð en á jarðhæð eru skráðar tvær verslanir. Í húsinu er ein elsta lyfta landsins sem gengur beint inn í íbúðina. Fasteignamat eignarinnar er 50 milljónir en óskað er eftir tilboðum.

Ekki er auðvelt að sjá íbúðina frá götu og lág hús á móts við íbúðina býður upp á mikið næði en að sama skapi skemmtilegt og fallegt útsýni.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin skráð samtals 178 fermetrar og sameign og lyfta samtals 3,4 fermetrar, alls 181,4 fermetrar.

Samkvæmt nýrri eignaskiptayfirlýsingu frá árinu 2011 þá er búið að skipuleggja sameign á jarðhæð sem er í eigu íbúðanna þriggja. Í henni hefur verið gert ráð fyrir þvottarými og fleira. Einstaklega smekkleg eign eins og sjá má hér að neðan.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands eru hjónin Pétur Jónasson og Hrafnhildur Hagalíns skráð fyrir eigninni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×