Innlent

Fimm handteknir eftir að hafa ekið á mann

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Maðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður.
Maðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður. vísir/anton brink
Fimm voru handteknir í dag, en einn þeirra er grunaður um að hafa bakkað á karlmann við gatnamót Kringlumýrar- og Háaleitisbrautar, þar sem hann var á leið yfir gatnamótin. Ökumaðurinn hafði farið af vettvangi án þess að nema staðar.

Upplýsingar um skráningarnúmer bifreiðarinnar lágu fyrir og hafði lögregla þannig uppi á bifreiðinni þar sem henni var lagt fyrir utan hús. Þar voru einstaklingarnir fimm handteknir þar sem ekki lágu fyrir upplýsingar um hver ökumaður bifreiðarinnar í umrætt skipti. Þeir reyndust undir áhrifum áfengis og voru því vistaðir í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.

Maðurinn sem fyrir bifreiðinni varð er ekki talinn alvarlega slasaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×