Innlent

Fimm Frakkar í tjaldi á Selfossi í nótt

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Fimm erlendir ferðamenn frá Frakklandi gistu í tjaldi á Selfossi í nótt.
Fimm erlendir ferðamenn frá Frakklandi gistu í tjaldi á Selfossi í nótt. visir/magnús hlynur
Starfsmönnum Bónus á Selfossi brá í brún í morgun þegar þeir voru á leiðinni í vinnuna og sáu tjald rétt við verslunina.

Þegar betur var að gáð koma í ljós að um fimm erlenda ferðamenn frá Frakklandi var að ræða.

Þeir eru hér á landi í þriggja vikna hringferð um landið. Frakkarnir komu til landsins 21. febrúar og fara heim 14. mars.

Einn af ferðamönnunum var vaknaður í tjaldinu í morgun þegar meðfylgjandi mynd var tekin, hinir voru enn í fastasvefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×