Innlent

Fimm fluttir á sjúkrahús eftir árekstur á Suðurlandsvegi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Slysið reyndist ekki jafn alvarlegt og talið var í fyrstu.
Slysið reyndist ekki jafn alvarlegt og talið var í fyrstu. vísir/eyþór
Fimm manns voru fluttir á slysadeild eftir árekstur tveggja fólksbíla á Suðurlandsvegi, nærri Litlu kaffistofunni um klukkan hálf þrjú í nótt.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var viðbúnaður mikill vegna slyssins og voru sendir þrír sjúkrabílar á vettvang frá Reykjavík auk tveggja frá Selfossi. Þá var tækjabíll einnig sendur á vettvang.

Í ljós kom að slysið reyndist ekki jafn alvarlegt og talið var í fyrstu og eru farþegar ekki alvarlega slasaðir. Ekki þurfti ekki að beita klippum til þess að losa farþega líkt og slökkvilið bjó sig undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×