Innlent

Fimm flokka stjórn frá vinstri að miðju fyrsti kostur

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bjarni Benediktsson yfirgefur Bessastaði eftir fund sinn með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands í gær.
Bjarni Benediktsson yfirgefur Bessastaði eftir fund sinn með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands í gær. vísir/vilhelm
Fyrsti valkostur Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna, er fimm flokka ríkisstjórn frá vinstri og að miðju.

Katrín fer á Bessastaði klukkan eitt í dag til fundar við forseta Íslands. Fastlega er búist við því að hún fái þar formlegt umboð til stjórnarmyndunarviðræðna.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sleit viðræðum við Bjarta framtíð og Viðreisn fyrripartinn í gær eftir að flokkunum mistókst að ná sáttum um málefni tengd Evrópusambandinu og sjávarútveginum.

Bjarni fundaði með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, í gær og upplýsti hann um stöðu mála.

„Ég tel að samtöl undanfarinna daga hafi leitt í ljós að það væri afar óvarlegt að leggja af stað með þann málefnagrunn sem um er rætt og nauman meirihluta inn í kjörtímabilið. Margt segir mér að aðstæður kalli á ríkisstjórn með breiðari skírskotun og sterkari meirihluta en þann sem þessir þrír flokkar geta boðið,“ sagði Bjarni eftir fundinn með forsetanum. Vísaði hann þar líklega til mögulegs samstarfs síns flokks og Vinstri grænna.

Katrín sagði í viðtölum í gær að hennar fyrsti kostur væri að mynda fimm flokka vinstristjórn. Slík stjórn myndi að öllum líkindum undanskilja núverandi ríkisstjórnar­flokka.

„Við erum reiðubúin að taka þátt í ríkisstjórnarsamstarfi,“ segir Einar Aðalsteinn Brynjólfsson, þingmaður Pírata og einn þriggja umboðsmanna flokksins í stjórnarmyndunarviðræðum.

Áður höfðu Píratar nefnt til sögunnar þann möguleika að flokkurinn myndi verja minnihlutastjórn falli. Aðspurður um mögulega fimm flokka stjórn segir Einar það vera einn möguleikann í stöðunni.

„Við tökum ekki þátt í að styðja ríkisstjórn sem inniheldur Framsókn. Þar er hver höndin upp á móti annarri og ég lít svo á að á meðan sé hann ekki stjórntækur,“ segir Einar.

Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að flokkurinn útiloki ekkert.

„Við þessar flóknu aðstæður þá verðum við sem ábyrgur flokkur að velta því fyrir okkur með hvaða hætti við getum orðið að liði,“ segir Logi.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir mikilvægt að menn andi með nefinu og ítrekar þá skoðun sína að þjóðin hafi verið að kalla eftir breiðri ríkisstjórn með víða skírskotun.

„Framsóknarflokkurinn er alltaf tilbúinn til þess að koma að myndun ríkisstjórnar. Mér þykir menn hafa farið of geyst í að útiloka samstarf við hina og þessa flokka og því er staðan örlítið flókin,“ segir Sigurður Ingi. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×