Innlent

Fimm dauðsföll vegna MDMA

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Hægt er að rekja dauðsföll fimm íslenskra ungmenna til eiturlyfsins MDMA frá aldamótum, en efnið er vinsælt í íslensku skemmtanalífi um þessar mundir. Rúmlega hundrað sjúklingar lögðust inn á Vog vegna MDMA-fíknar á síðasta ári, en þeim hefur fjölgað töluvert síðustu þrjú ár. 

Í fréttaskýringaþáttunum Brestum var í gær sögð saga rúmlega tvítugrar konu sem lést úr of stórum skammti af eiturlyfinu MDMA, eða Mollý eins og það er jafnan kallað. Eiturlyfið kom fyrst hingað til lands rétt fyrir aldamótin og var nokkuð vinsælt árin eftir. Við efnahagshrunið minnkaði notkun efnisins mikið en það fór svo aftur að gera vart við sig í miklum mæli um og upp úr 2011. 

Eins og greint var frá í fréttum okkar í gær hefur styrkur í MDMA neysluskömmtum allt að því tvöfaldast síðust ár, en neysluskammtur af Mollý er um 100 milligrömm og er grammið selt á 15 -20 þúsund krónur. Dauðaskammtur af MDMA er talinn vera um 500 milligrömm. Það fer þó eftir reynslu og þoli hvaða áhrif skamturinn hefur, auk þess sem neysla annarra vímugjafa spilar inn í.

Lögreglu, bareigendum og sjúkraflutningamönnum sem fréttastofa hefur rætt við kemur saman um að efnið hafi náð mikilli dreifingu á skömmum tíma.

Fram kom í Brestum í gær að fjölmörg ungmenni telji efnið skaðlaust, en samkvæmt krufningarskýrslum er hægt að rekja dauðsföll fimm íslenskra ungmenna frá aldamótum beint til neyslu MDMA eða náskyldra efna.


Tengdar fréttir

Skipulagði smygl innan úr fangelsinu

Umfangsmikil aðgerð lögreglu leiddi til handtöku fanga á Kvíabryggju. Lögreglan lagði hald á stera, MDMA og peninga við húsleit vegna málsins.

Flytja inn vökva og framleiða MDMA

Fíkniefnadeild lögreglunnar hefur undanfarið lagt hald á tæki og efni sem hafa verið notuð við framleiðslu eiturlyfsins MDMA. Helst er um að ræða sérstakar töflugerðarvélar sem notaðar eru til að setja MDMA-duft í töfluform.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×