Erlent

Fimm ára stúlka skaut sig með skammbyssu

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Lögregla rannsakar dauðsfall stúlkunnar.
Lögregla rannsakar dauðsfall stúlkunnar. Vísir/Getty
Fimm ára stúlka skaut sjálfa sig með skammbyssu á heimili sínu í Louisiana-ríki í Bandaríkjunum. Hún lést í kjölfarið af sárum sínum. Þetta kemur fram á Guardian.

Lögregluyfirvöld í heimabæ stúlkunnar segja í yfirlýsingu að samkvæmt föður stúlkunnar hafi hún verið að leika sér með byssuna þegar hún skaut sig. Harmleikurinn átti sér stað í gærmorgun.

Sjúkraliðar fluttu stúlkuna á spítala þar sem hún lést sem fyrr segir. Lögreglumenn segja byssuna ekki hafa verið geymda á öruggum stað. Málið er í rannsókn og verða frekari upplýsingar veittar síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×