Viðskipti erlent

Fimm af stærstu bönkum heims sektaðir um 760 milljarða

Atli Ísleifsson skrifar
Barclays-bankinn var sektaður um 2,4 milljarða Bandaríkjadala.
Barclays-bankinn var sektaður um 2,4 milljarða Bandaríkjadala. Vísir/Getty
Fimm af stærstu bönkum heims hafa verið sektaðir um 5,7 milljarða Bandaríkjadala, eða um 760 milljárða króna, fyrir að ólöglega hagræðingu á gjaldeyrismarkaði.

Í frétt BBC segir að fimm bankanna – JPMorgan, Citigroup, Barclays og RBS – hafi ákveðið að játa hegningarlagabrot, en sá fimmti, UBS, játað að hafa haft óeðlileg afskipti af viðmiðunarvöxtum.

Barclays-bankinn var sektaður um heila 2,4 milljarða Bandaríkjadala, þar sem þeir hafi ekki gengið að samningaborðinu með fulltrúum bandarískra, svissneskra og breskra eftirlitsyfirvalda í nóvember, líkt og hinir bankanir fjórir.

Loretta Lynch, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að á nærri hverjum degi á fimm ára tímabili frá árinu 2007 hafi gjaldeyrisbraskarar notast við spjallsvæði til að hafa áhrif á vexti. Segir hún að aðgerðir bankanna hafi skaðað ótal neytendur, fjárfestir og stofnanir víðs vegar um heiminn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×