Lífið

Fimm æði sem gripu heiminn á árinu

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Lag eftir söngkonuna Beyoncé Knowles var upphafið að sjálfsmyndaæðinu.
Lag eftir söngkonuna Beyoncé Knowles var upphafið að sjálfsmyndaæðinu. vísir/Getty
Hvert einasta ár grípur um sig eitthvert æði eða tíska sem allur heimurinn virðist gleypa við. Hver man ekki eftir því þegar allir voru að planka? Nú eða Harlem Shake og Macarena? Í ár voru það sjálfsmyndatökur og afturendar sem tröllriðu heiminum.

I woke up like this

Lagið Flawless eftir söngkonuna Beyoncé Knowles varð kveikjan að röð sjálfsmynda á samfélagsmiðlum á árinu. 

Lína úr laginu, I Woke Up Like This, var yfirskrift sjálfsmyndanna og kepptust þekktir og óþekktir einstaklingar við að birta myndir af sér nývöknuðum, ómáluðum og ótilhöfðum. 

Sjálfsmyndaáskoruninni var ætlað að vekja athygli á óraunhæfum útlitskröfum.

Selfie-stöng gerir allar sjálfsmyndatökur auðveldari.nordicphotos/getty
„Selfie“-stöngin

„Selfies“ eða sjálfsmyndir urðu enn meira áberandi eftir tilkomu snjallsímans. 

Það getur hins vegar oft reynst erfitt að smella af sjálfsmynd með símanum án þess að sjáist í öxl og upphandlegg viðkomandi. 

„Selfie“-stöngin ræður bót á því máli og gerir sjálfsmyndatökur auðveldar.

Omaggio-vasar

Röndóttu vasarnir frá Kähler áttu gífurlegum vinsældum að fagna á landinu.

Afmælisútgáfa vasans með handmáluðum messing-línum gerði mikla lukku og margir aðdáendur danska fyrirtækisins Kähler reyndu að tryggja sér eintak.

Örtröð skapaðist fyrir utan verslanir þegar áhugasamir kaupendur hugðust verða sér úti um eintak afmælisvasans og sölusíður vefverslana önnuðu ekki eftirspurn.

Leikkonan Lindsay Lohan var meðal þeirra sem tóku þátt í áskoruninni hjá Jimmy Fallon.Nordicphotos/Getty
Ísfötuáskorunin

Á sumarmánuðum var ísfötuáskorunin áberandi á samfélagsmiðlum og í fréttum.

Markmið áskorunarinnar var að vekja athygli á MND-sjúkdómnum og safna fjármagni til frekari rannsókna á honum.

Vel tókst til og gríðarlegur fjöldi einstaklinga og fyrirtækja tók þátt og birti myndbönd af sér að hvolfa ísmolum yfir höfuð sér í nafni áskorunarinnar.

Kopar og marmari

Það má með sanni segja að kopar og marmari hafi verið með því vinsælasta í innanhússhönnun á árinu 2014.

Kertastjakar, skálar, borð og vasar, allt var undirlagt í kopar og marmara.

Margir gripu til þess ráðs að gera eigin útfærslur meðal annars með því að spreyja gamla kertastjaka með koparlit og borðplötur voru klæddar með marmarafilmum.

Afturendar voru áberandi á árinu.nordicphotos/Getty
Afturendar

Á árinu voru afturendar hinna ýmsu stjarna áberandi. Hvort sem það var í tónlistarmyndböndum eða á forsíðum tímarita þá virtist tími afturendans runninn upp.

Í flestum tilfellum var um kvenkyns stjörnur að ræða en í tónlistarmyndböndum Nicki Minaj, Jennifer Lopez og Beyoncé Knowles var bakhlutamiðað þema og auk þess vakti forsíðumynd og myndaþáttur tímaritsins PAPER með myndum af Kim Kardashian heimsathygli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×