Fótbolti

FIFA: Suður-Afríka greiddi rúman milljarð fyrir HM 2010

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jack Warner er talinn einn sá allra spilltasti í heimsknattspyrnunni.
Jack Warner er talinn einn sá allra spilltasti í heimsknattspyrnunni. Vísir/Getty
Alþjóðaknattpsyrnusambandið, FIFA, hefur lagt fram kærur í New York á hendur fyrrum embættismanna sambandsins fyrir að þiggja mútur og stela pening frá sambandinu.

Samkvæmt heimildum Sky Sports gæti heildarupphæðin sem FIFA vill fá í skaðabætur um 190 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 24 milljarða króna.

Meðal þeirra sem FIFA kærði eru Jack Warner, fyrrum varaforseti og forseti CONCACAF [Knattspyrnusamband Norður- og miðameríku], Jeffrey Webb, sem gegndi sömu embættum, og Chuck Blazer, fyrrum framkvæmdastjóri CONCACAF.

Sjá einnig: Einn sá allra spilltasti snýst gegn Blatter og ætlar að segja frá öllu

Fram kemur í sömu skjölum að FIFA telur að Knattspyrnusamband Suður-Afríku hafi greitt tíu milljónir Bandaríkjadala, rúman milljarð króna, í mútur til að tryggja sér HM 2010.

Sá peningur mun hafa skilað sér til Warner, Blazer og þriðja meðlims framkvæmdastjórnar FIFA. Peningurinn fór í gegnum FIFA, dulbúinn sem fjárhagsaðstoð fyrir knattspyrnuna í karabíska hafinu.

„Það er nú ljóst að margir meðlimir framkvæmdastjórnarinnar misnotuðu aðstöðu sína og seldu atkvæði sín margsinnis,“ sagði í kærunni frá FIFA.

Sjá einnig: Eggert um spillinguna hjá FIFA: Maður tók fyrir augun í Argentínu

Ljóst er að það var einnig spilling í tengslum við kosninguna á HM 2018 og 2022, sem fara fram í Rússlandi og Katar, en FIFA hefur samt sem áður sagt að þeim keppnum verði ekki breytt úr þessu.

Gianni Infantino, nýkjörinn forseti FIFA, segir að málið verði sótt fram af hörku og að hann sé þess fullviss um að réttlætinu verði fullnægt, enda hafi þessar fjárhæðir verið ætlaðar uppbyggingu knattspyrnunnar á heimsvísu.


Tengdar fréttir

Infantino kjörinn forseti FIFA

Gianni Infantino hafði betur gegn Sjeik Salman, forseta knattspyrnusambands Asíu, í annarri umferð kjörsins.

Geir um Infantino: Fyllist mikilli von

Geir Þorsteinssyni, formanni KSÍ, var létt þegar ljóst varð að Svisslendingurinn Gianni Infantino hafði betur gegn Sjeik Salman í forsetakjöri Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×