Erlent

Fiðrildi lenti á andliti flautuleikara

Atli Ísleifsson skrifar
Yukie Ota lét sér fátt um finnast.
Yukie Ota lét sér fátt um finnast. Mynd/YouTube
Fiðrildi kom sér fyrir á andliti japanska flautuleikarans Yukie Ota á tónleikum í húsi sinfóníunnar í Óðinsvéum á mánudaginn.

Atvikið virtist þó ekki hafa mikil áhrif á flutning Ota sem hélt flutningi sínum áfram líkt og ekkert hefði í skorist.

Ota var að keppa í alþjóðlegri flautukeppni Carls Nielsen þegar fiðrildið leit við. Var hún að flytja Sónatínu fyrir fiðlu og píanó eftir franska tónskáldið Pierre Sancan.

Ota virtist þó sjá broslegu hliðina á málinu og brosti að flutningi loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×