Lífið

Fiðlusnillingur sem elskar dýr

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ragnhildur Sigurlaug hefur gaman af mörgu, meðal annars dýrunum á bænum. Hér er hún með lítinn kiðling.
Ragnhildur Sigurlaug hefur gaman af mörgu, meðal annars dýrunum á bænum. Hér er hún með lítinn kiðling. Mynd/Kristín H. Bergsdóttir
 Ragnhildur Sigurlaug er 10 ára og á heima á Grænumýri í Skagafirði. Hún byrjaði þriggja ára að æfa á fiðlu og finnst það skemmtilegt. Á svæðistónleikum á Egilsstöðum nýlega var hún valin til að flytja einleiksatriði á Nótunni, uppskeruhátíð tónlistarskólanna í Hörpu og hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi flutning. Hvernig leið henni? Ég var bæði spennt og ánægð. Það var geggjað gaman að spila í Eldborg. Ég spilaði Húmoresku eftir Dvorak og var bara pínu stressuð.

Hefur þú spilað áður í Hörpu? Já, einu sinni á Landsmóti strengjanemenda, þá var ég reyndar svo lítil að ég sá ekki þann sem stjórnaði hljómsveitinni!

Hvar lærir þú? Tónlistarskólinn minn er í Varmahlíð sem er ekkert svo langt frá Grænumýri, stundum fer ég á Sauðárkrók í samspil og það er lengra. Ég er líka að læra söng hjá Helgu Rós Indriðadóttur óperusöngkonu í Varmahlíð.





Ragnhildur Sigurlaug getur leikið bæði við lömb og kiðlinga þessa dagana heima hjá sér á Grænumýri. Þessi kiðlingur er huðna, semsagt kvendýr.
Hvaða fag er í uppáhaldi í grunnskólanum? Mér finnst heimilisfræðin skemmtilegust. Annars finnst mér gaman að læra allt í skólanum.

Fleiri áhugamál? Hestamennska, dans, dýr, lestur og að teikna og mála, baka, smíða og sauma. Bara alveg heill hellingur.

Ertu mikið fyrir búskapinn? Já, við búum á sauðfjárbúi og eigum um 600 kindur og 27 geitur, nokkur hross, hunda og kanínu. Núna er að byrja sauðburður og það eru komin nokkur lömb og fullt af kiðlingum. Svo eru líka sjö hvolpar. Ég hef verið í reiðtímum á Varmalæk á hestinum mínum henni Eldingu og okkur gengur bara vel saman.

Það skrítnasta sem hefur komið fyrir þig? Hmmm, þetta er erfið spurning, en eitt af því fyndnasta var þegar ég var lítil og datt með andlitið beint ofan í hrossaskítshrúgu!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×