Íslenski boltinn

FH kvaddi fallbaráttuna með sigri í Árbæ

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Aldís Kara Lúðvíksdóttir og stöllur hennar í FH unnu mikilvægan sigur eftir langa taphrinu.
Aldís Kara Lúðvíksdóttir og stöllur hennar í FH unnu mikilvægan sigur eftir langa taphrinu. vísir/eyþór
FH kvaddi fallbaráttuna í Pepsi-deild kvenna með 2-1 sigri á Fylki í Árbæ í kvöld en eftir sigurinn er það nánast ómögulegt að liðið falli þegar tvær umferðir eru eftir.

Aðeins eitt stig skyldi liðin að fyrir leik dagsins í Pepsi-deild kvenna. FH-ingar voru í 6. sæti með 14. stig á meðan Fylkir var í því sjöunda með 13. stig.

Alex Nicole Alugas kom FH yfir á 34. mínútu en á 64. mínútu náði Kristín Erna Sigurlásdóttir metin fyrir Fylki.

Helena Ósk Hálfdánardóttir náði hinsvegar að kreista fram sigurinn fyrir FH á 88. mínútu eftir aðra stoðsendingu Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur í leiknum.

Í seinni leik dagsins unnu Valskonur þægilegan 2-1 sigur á ÍA og gengu langt með að fella um leið Skagaliðið.

Mist Edvardsdóttir og Dóra María Lárusdóttir komu Val yfir strax á upphafsmínútunum en Hrefna Þuríður Leifsdóttir náði að minnka muninn fyrir ÍA í seinni hálfleik.

Valskonur eru áfram í þriðja sæti deildarinnar en ÍA er í botnsætinu, fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni þegar tvær umferðir eru eftir.

Upplýsingar um markaskorar og úrslit koma frá Fotbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×