Íslenski boltinn

FH-ingar unnu líka ytra

Vísir/Valgarður
FH vann í kvöld 3-2 sigur á Glenavon á Norður-Írlandi og er þar með komið áfram í aðra umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA.

FH vann fyrri leikinn á heimavelli, 3-0, í síðustu viku þar sem öll mörk leiksins komu á síðustu tíu mínútunum.

Hafnfirðingar voru þó aðeins þrjár mínútur að brjóta ísinn í kvöld en það gerði Ingimundur Níels Óskarsson. Kristján Gauti Emilsson kom svo FH í 2-0 með marki á 37. mínútu.

Norður-Írarnir jöfnuðu metin með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla í síðari hálfleik. En Kristján Gauti tryggði FH-ingum sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 69. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×