Sport

FH hirti bikarmeistaratitilinn af ÍR

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arna Stefanía Guðmundsdóttir, FH, hrósaði sigri í 400 metra hlaupi og langstökki.
Arna Stefanía Guðmundsdóttir, FH, hrósaði sigri í 400 metra hlaupi og langstökki. vísir/anton
FH rauf í dag þriggja ára einokun ÍR á bikarmeistaratitlinum í frjálsum íþróttum innanhúss.

Bikarkeppnin var haldin í Kaplakrika og FH-ingar gerðu sér lítið fyrir og tóku titilinn á heimavelli.

FH náði í 98 stig, tveimur meira en ÍR. Norðurland og Fjölnir/Afturelding komu næst með 58 stig hvor. Breiðablik endaði í 5. sæti og Ármann rak lestina með 26 stig.

FH varð einnig hlutskarpast í karla- og kvennaflokki en þau stig voru reiknuð sér.

FH fékk alls 22 verðlaun í bikarkeppninni; 11 gullverðlaun, sex silfurverðlaun og fimm bronsverðlaun. ÍR kom næst með 21 verðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×