Íslenski boltinn

FH getur orðið meistari í dag og Þróttur fallið | Sjáðu mörk gærdagsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristján Flóki Finnbogason tryggði FH jafntefli gegn Val í gær.
Kristján Flóki Finnbogason tryggði FH jafntefli gegn Val í gær. Vísir
FH-ingar verða Íslandsmeistarar í dag ef að ÍBV nær að minnsta kosti stigi gegn Breiðabliki í dag.

Breiðablik er nú eina liðið sem á möguleika á að ná FH-ingum að stigum í deildinni en liðið mætir Eyjamönnum klukkan 16.45 á Kópavogsvelli í dag.

Blikar geta mest komið í 43 stig en FH er eftir jafnteflið gegn Val í gær með 42 stig. Blikar eiga þrjá leiki eftir á tímabilinu en FH tvo.

Fjölnir tapaði fyrir Val í gær og stimplaði sig þar með formlega úr titilbaráttunni en liðið heldur þó enn í annað sæti deildarinnar og þar með vonir sínar um sæti í Evrópudeildinni á næsta ári.

Það verður einnig hart barist í fallbaráttu Pepsi-deildarinnar í dag en Þróttur getur fallið ef liðið tapar fyrir Víkingi Ólafsvík á heimavelli og ÍBV vinnur Breiðablik.

Leikur Þróttar og Ólafsvíkinga hefst klukkan 19.15 í Laugardalnum og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 klukkan 19.05.

Þá mætast Stjarnan og ÍA klukkan 20.00 og verður sá leikur sýndur beint á Stöð 2 Sport. Umferðin verður svo gerð upp í Pepsi-mörkunum klukkan 22.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×