Íslenski boltinn

FH að fá færeyskan landsliðsmann frá Danmörku

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Olsen fagnar marki í leik með FCK.
Olsen fagnar marki í leik með FCK. vísir/getty
FH-ingar eru ekki hættir að safna liði fyrir átökin í Pepsi-deild karla og nú er Færeyingur væntanlegur.

Samkvæmt heimildum Vísis hefur FH náð samkomulagi við Randers um fá Brand Olsen í Kaplakrika.

Þetta er 22 ára Færeyingur sem spilar á miðjunni. Hann var á mála hjá FCK frá 2014 til 2016. Hann samdi svo til þriggja ára við Randers í júlí árið 2016.

Brandur er prímusmótorinn í færreyska landsliðinu þar sem hann hefur skorað þrjú mörk í sextán landsleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×