Íslenski boltinn

FH - Fram í beinni á Stöð 2 Sport

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Ákveðið hefur verið að sýna leik FH og Fram á Stöð 2 Sport í stað viðureign Fjölnis og Stjörnunnar.

Síðarnefnda leiknum var frestað klukkan 15.30 vegna veðurs. Stöð 2 Sport hefur ákveðið að færa sig um set og sýna beint frá leiknum í Kaplakrika.

Leikurinn hefst klukkan 16.00 sem og hinir fjórir leikir dagsins í Pepsi-deild karla.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×