Leikjavísir

Fetað í fótspor galdrakarla

Samúel Karl Ólason skrifar
Sýndarveruleikafyrirtækið Aldin Dynamics kynnti nýverið „sýndarveruleikaupplifunina“ Waltz of the Wizard. Með WotW getur fólk upplifað hvernig það er að búa yfir galdrakröftum, brugga seiði og fleira og byggir hann á kvikmyndum eins og Fantasia og Harry Potter.

Spilarar geta notað hendur sýnar til að hafa áhrif á umhverfi sitt, hvort sem það er að taka upp hluti eða galdra.

Sjá einnig: Tími til kominn að brjótast inn í þrívíddina

Waltz of the Wizard gerir spilurum kleift að upplifa hvernig það er að búa yfir göldrum.Mynd/Aldin Dynamics
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Aldin Dynamics hafi unnið að þróun hugbúnaðar fyrir sýndarveruleika frá árinu 2013.

„Við sameinum skapandi sýn með nýjustu tækni til að byggja heima sem vita af veru okkar í þeim, umhverfi sem bregðast við á sannfærandi hátt og hreyfingar og karaktera sem skilja ásetning okkar.“

Aldin Dynamics birti í vikunni stiklu fyrir Waltz of the Wizard sem sjá mér hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×