Lífið

Fertugur og flottur á Instagram

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Beckham blæs á afmæliskertin ásamt eiginkonu sinni Victoriu.
Beckham blæs á afmæliskertin ásamt eiginkonu sinni Victoriu. Vísir
Það má með svo sannarlega líkja fyrrverandi fótboltastjörnunni David Beckham við gott vín, því maðurinn virðist einungis verða betri með hverju árinu sem líður.

Um helgina fagnaði hann fertugsafmæli sínu og af því tilefni opnaði hann loksins Instagram-síðu.

Á fyrstu myndinni sem hann birti, liggur hann ber að ofan í rúmi og skrifar við hana að hann hafi lengi ætlað sér að byrja á Instagram og geti ekki beðið eftir að deila sérstökum augnablikum með aðdáendum sínum.

Það er greinilegt að Beckham á fjölda aðdáenda, en strax á mánudag var hann kominn með 4,6 milljónir fylgjenda.

Afmælisdeginum eyddi hann með fjölskyldunni í borginni Marrakash í Marokkó og var slegið upp veislu um kvöldið. Meðal gesta í veislunni voru kryddpíurnar Mel C, Geri og Emma. Fyrrverandi aðþrengda eiginkonan Eva Longoria mætti að sjálfsögðu, enda góð vinkona Beckham-hjónanna. Þar voru líka leikkonan Liv Tyler, kokkurinn Gordon Ramsey, Guy Ritchie og David Blaine.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×