Innlent

Ferskum gulrótum skaut upp á Dalvík í vorveðrinu

Benedikt Bóas skrifar
Gulræturnar sem Guðný tók upp.
Gulræturnar sem Guðný tók upp. Mynd/Guðný Sigríður Ólafsdóttir
„Þær voru dásamlega góðar. Brakandi ferskar og fínar,“ segir Guðný Sigríður Ólafsdóttir, kennari á Dalvík, en hún tók upp fulla skál af nýjum gulrótum á sunnudag. Slíkt er auðvitað frekar fjarstæðukennt enda ekki algengt að gulrætur láti á sér kræla í miðjum febrúarmánuði.

„Ég hef ekki einu sinni tekið upp svona stórar gulrætur fyrr,“ segir hún en gulræturnar kúrðu í beðinu austan við hús hennar á Dalvík.

Mikill hiti hefur verið á landinu að undanförnu og fór hitinn upp í 19,1 gráðu við Eyjabakka en Trausti Jónsson veðurfræðingur á þó eftir að staðfesta það. Hæsti staðfesti hitinn í gær var á Seyðisfirði þar sem hitinn sló í 13,7 gráður. Enda hafa margir nýtt sér góða veðrið og farið í golf, sótt kindur á fjall, vegir hafa verið heflaðir og mörg skólabörn nýttu sér góða veðrið með því að vera á stuttermabol í frímínútum. Séu vefmyndavélar Vegagerðarinnar skoðaðar má sjá að það er varla snjóarða á eða við vegi landsins.

„Þetta er óvenjulegt. Tíðin er óvenjuleg,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, fagstjóri almennrar veðurþjónustu hjá Veðurstofu Íslands, og bætir því við að þetta stefni í að verða sögulegur febrúar hvað hita varðar.

Fyrir ári var forsíðumynd Fréttablaðsins af krökkum að ganga úr skólanum í gríðarlegu fannfergi enda voru alhvítir dagar í Reykjavík alls 27 í febrúar í fyrra. Snjómagn var einnig í meira lagi, það mesta í febrúar síðan árið 2000. Alhvítt var allan febrúar í fyrra á Akureyri.

Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni, segir að fyrir helgi hafi byggst upp svokölluð fyrirstöðuhæð sem hafi setið föst og beint köldu lofti frá Austur-Evrópu yfir Bretland meðal annars. Hlýtt loft hafi komið langt sunnan úr höfum og vegna fyrirstöðuhæðarinnar ekki komist neitt annað en til Íslands. Hefði þetta gerst að sumarlagi hefði hitinn líklega farið yfir 25 stig.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×