Ferskir vindar um Höllina

Fréttablaðið Körfubolti 18. febrúar 2012 10:00
Helgi Rafn Viggósson hjá Tindastól og Magnús Þór Gunnarsson hjá Keflavík með bikarinn.
Helgi Rafn Viggósson hjá Tindastól og Magnús Þór Gunnarsson hjá Keflavík með bikarinn. Mynd/Jón Björn Ólafsson
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Karlalið Keflavíkur sker sig svo sannarlega úr meðal þeirra fjögurra liða sem spila til úrslita um Poweradebikarinn í Laugardalshöllinni í dag. Keflvíkingar hafa unnið bikarinn fimm sinnum en þá tilfinningu þekkja hin lið þrjú hinsvegar ekki. Þetta verður jafnframt fyrsti bikarúrslitadagurinn í 18 ár sem höfuðborgarsvæðið á engan fulltrúa. Leikur Njarðvíkur og Snæfells í kvennaflokki hefst klukkan 13.30 en karlaleikur Keflavíkur og Tindastóls hefst síðan klukkan 16.00.

Keflvíkingar eru mun ofar í töflunni og sigurstranglegri í karlaleiknum í dag. Stólarnir geta horft til Stjörnumanna sem fóru í Höllina í fyrsta sinn fyrir þremur árum og urðu þá bikarmeistarar eftir mjög óvæntan sigur á afar vel mönnuðu KR-liði.


Sigurganga Sigurðar
Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, á nú frábæran möguleika á því að bæta enn einum titlinum í verðlaunasafnið hjá sér en Keflavík varð bikarmeistari undir hans stjórn 1997 og 2003.

Bárður Eyþórsson, þjálfari Tindastóls, er mættur með þriðja félagið í Höllina en þangað fóru einnig á sínum tíma Snæfellingar (2003) og Fjölnismenn (2008) undir hans stjórn. Bárður á enn eftir að vinna stóran titil (Íslands- eða bikarmeistaratitil) sem þjálfari en tvö af fjórum silfrum hans hafa komið eftir töp á móti liðum undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar.


Hildur Sigurðar-dóttir hjá Snæfelli og Ólöf Helga Pálsdóttir hjá Njarðvík með bikarinn.
Hildur Sigurðar-dóttir hjá Snæfelli og Ólöf Helga Pálsdóttir hjá Njarðvík með bikarinn. Mynd/Jón Björn Ólafsson
Endurtekning frá 1999?
Tindastóll hefur aldrei komist í bikarúrslitaleikinn áður en Stólarnir unnu sinn eina titil í nóvember 1999 þegar þeir unnu Keflavík í úrslitaleik Eggjabikarsins. Svavar Birgisson og Helgi Freyr Margeirsson eru einu leikmenn Tindastóls í dag sem spiluðu þennan leik í Smáranum fyrir rúmum tólf árum.

Magnús Þór Gunnarsson, fyrirliði Keflavíkur, er reynslumesti leikmaðurinn í dag en hann er að fara spila sinn fjórða bikarúrslitaleik. Halldór Örn Halldórsson og Gunnar H. Stefánsson voru einnig með þegar Keflavík vann bikarinn síðast fyrir átta árum.

Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Tindastóls, var með Keflavík í síðasta bikarúrslitaleik félagsins sem tapaðist árið 2006. Enginn Tindastólsmaður hefur unnið bikarinn en Friðrik Hreinsson tapaði bikarúrslitaleiknum með Hamar/Selfoss árið 2007.


Nýtt nafn á bikarinn
Njarðvík og Snæfell keppa um það í dag að verða áttunda félagið sem vinnur bikarmeistaratitilinn í kvennaflokki en Njarðvík er sigurstranglegra enda mun ofar í töflunni og þegar búið að slá út bæði Keflavík og Hauka. Njarðvík hefur tapað fyrstu þremur bikarúrslitaleikjum sínum en Snæfell er komið í Höllina í fyrsta sinn. Aðeins 3 af 8 liðum hafa unnið bikarinn í fyrstu tilraun en það gerðist síðast þegar Haukar unnu í bikarúrslitaleiknum 1984. Hinir gullnu nýliðarnir eru ÍS (1978) og Þór (fyrsti leikurinn 1975).

Njarðvík lék síðast til úrslita fyrir tíu árum en tapaði þá fyrir KR í framlengdum leik. Hildur Sigurðardóttir, núverandi leikmaður Snæfells, varð þá bikarmeistari í fyrsta sinn á ferlinum en hún lyfti einnig bikarnum sem fyrirliði KR fyrir þremur árum.

Njarðvíkingarnir Ólöf Helga Pálsdóttir og Petrúnella Skúladóttir urðu bikarmeistarar saman með Grindavík fyrir fjórum árum og eru einu leikmenn Njarðvíkurliðsins sem þekkja það að fara í Höllina. Hildur og Alda Leif Jónsdóttir hafa eina reynslu af bikarúrslitaleikjum í Snæfellsliðinu en Alda Leif á möguleika að verða bikarmeistari með þriðja félaginu.

Ef litið er á innbyrðisleiki vetrarins er ekki hægt að sjá fyrir annað en að karlalið Keflavíkur og kvennalið Njarðvíkur tryggi sér bikarmeistaratitilinn í dag. Keflavík hefur unnið báða leikina við Tindastól (með 9 og 19 stigum) og Njarðvíkurkonur hafa unnið alla þrjá leiki sína við Snæfell þar af þann síðasta með 24 stigum.


Tindastóll og Njarðvík
Fréttablaðið fékk fimm leikmenn úr deildunum til að spá fyrir um úrslit leikjanna í dag. Atkvæðin skiptust meira í karlaleiknum því aðeins einn af fimm spámönnum kvennamegin er á því að Snæfellskonur vinni í fyrstu tilraun. Tindastóll fékk þrjú atkvæði gegn tveimur karlamegin. Það er hægt að sjá spárnar hér til hliðar. ooj@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Körfubolti

Körfubolti 24. maí. 2012 17:27

Skotsýning hjá íslensku stelpunum og 27 stiga stórsigur á Noregi

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta byrjar mjög vel á Norðurlandamótinu í Noregi því Ís...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 15:30

Hildur sú fyrsta til að taka þátt í fjórum Norðurlandamótum

Hildur Sigurðardóttir verður í eldlínunni með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta sem ...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 09:19

NBA í nótt: Philadelphia knúði fram oddaleik

Philadelphia heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta e...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 06:30

999 daga bið eftir leik á enda

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta leikur í kvöld fyrsta leikinn sinn á Norðurlandamót...  

Meira
Körfubolti 23. maí. 2012 09:30

NBA í nótt: Öruggur sigur Miami

Miami er komið í 3-2 forystu í einvígi sínu gegn Indiana í undanúrslitum Austurdeildarinna...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 21:30

Skotbardagi eftir leik Thunder og Lakers

Allt varð vitlaust nærri íþróttahöllinni í Oklahoma á sama tíma og áhorfendur voru að yfir...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 09:37

NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers

Oklahoma City heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta ...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 17:30

Darrell Flake til Þorlákshafnar

Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi leiktíð en Darrell Flake hefur gengið til lið...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 09:24

San Antonio í úrslit Vesturdeildar | LeBron James fór á kostum

LeBron James fór á kostum í liði Miami Heat í gær þegar liðið lagði Indian í undanúrslitum...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 23:00

NBA: Miami Heat jafnar einvígið gegn Indiana | James og Wade fóru á kostum

Lebron James og Dwyane Wade hafa fengið á sig töluverða gagnrýni að undanförnu og þá sérst...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 14:08

Stelpurnar misstu bronsið úr höndunum í fjórða leikhluta

Íslenska 18 ára landslið kvenna rétt missti af bronsinu eftir naumt þriggja stiga tap á mó...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 13:30

Þrír íslenskir krakkar komust í úrvalslið Norðurlandamótsins

Ísland átti þrjá leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í Svíþjóð ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:09

Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti un...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:00

NBA: Los Angeles liðin misstu bæði niður góða forystu

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir hana eru bæði Los ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 08:00

NM unglinga í körfu: Einn leikur um gull og tveir leikir um brons

Í dag fer fram lokadagurinn á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer eins og venjul...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 19:54

Frábær sigur stelpnanna á Finnum dugði ekki - spila um bronsið

Íslenska 16 ára landslið kvenna er að gera frábæra hluti á Norðurlandamótinu undir stjórn ...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 14:45

Miami-liðið að brenna yfir - hættu við æfingu og gáfu engin viðtöl

Miami Heat er komið í slæm mál í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir stórtap...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 12:40

Falur hættir með Keflavíkurkonur - Sigurður þjálfar bæði liðin

Sigurður Ingimundarson mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Keflavíkur Iceland Express deil...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 11:00

NBA: Lakers minnkaði muninn og Philadelphia jafnaði

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og jókst spenn...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:25

Fyrsti sigur 18 ára stelpnanna í fimm ár - spila um bronsið

Íslenska 18 ára landslið kvenna vann langþráðan sigur á Norðurlandamótinu í morgun þegar s...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:12

Strákarnir spila um gullið - fóru illa með Norðmenn

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta er að gera góða hluti á Norðurlandamótinu í körfub...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:15

NBA: Góður afmælisdagur hjá Parker - 16. sigur San Antonio í röð

Tony Parker hélt upp á þrítugsafmælið með því að skora 22 stig og hjálpa sínum mönnum í Sa...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:00

NBA: Útlitið svart hjá Miami eftir skell á móti Indiana

Indiana Pacers er komið í 2-1 á móti Miami Heat eftir öruggan 94-75 sigur í þriðja leik li...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 22:12

Þrír sigrar á Norðurlandamóti yngri landsliða í dag

Yngri landslið Íslands í körfubolta stóðu í ströngu á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sví...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 15:30

Larry Bird náði einstakri þrennu

Larry Bird, forseti Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta, var í gær valinn besti fr...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 10:00

NBA í nótt: Oklahoma City komið í 2-0 á móti Lakers - Boston vann

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Oklahoma City...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 22:45

Amare Stoudemire skráði sig í skóla í Miami

Þetta var erfitt tímabil fyrir Amare Stoudemire í NBA-deildinni í körfubolta og hann kórón...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 15:30

Derrick Rose gæti misst af öllu næsta tímabili

Derrick Rose sleit krossband í fyrsta leik Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar ...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:15

NBA: Auðvelt hjá San Antonio í fyrsta leik á móti Clippers

San Antonio Spurs hélt sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolt...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:00

NBA: Indiana jafnaði á móti Miami

Indiana Pacers jafnaði metin í 1-1 í nótt í undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar á móti ...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 10:30

Phil Jackson bíður við símann eftir atvinnutilboði

Phil Jackson, sigursælasti þjálfari í NBA deildinni í körfubolta, hefur áhuga á að taka að...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 09:00

Oklahoma rúllaði yfir LA Lakers | Boston tapaði á heimavelli

Oklahoma City Thunder sýndi styrk sinn gegn LA Lakers í nótt þegar liðin mættust...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 23:30

Heimsfriðurinn: Ætlar ekki að biðja Harden afsökunar fyrir einvígið

Metta World Peace, eða Heimsfriðurinn, er búinn að taka út sjö leikja bann fyrir að gefa J...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 17:53

Chris Bosh frá í ótilgreindan tíma

Miami Heat tilkynnti í dag að Chris Bosh muni ekki spila með liðinu á næstunni vegna meiðs...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 09:00

Kyrie Irving nýliði ársins í NBA-deildinni

Bandarískir fjölmiðlar hafa grafið það upp að Kyrie Irving, leikmaður Cleveland Cavaliers,...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 23:45

Nelson útskrifast fimmtíu árum of seint úr háskóla

Fyrir fimmtíu árum síðan yfirgaf Don Nelson háskólann í Iowa þó svo hann ætti mjög lítið e...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 22:25

Miami vann fyrsta leikinn gegn Indiana

Miami Heat er komið með forskot í rimmunni gegn Indiana Pacers í annarri umferð í úrslitak...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 20:37

Olympiacos vann Evrópudeildina í körfubolta

Gríska liðið Olympiacos sigraði í kvöld Evrópudeildina í körfubolta eftir magnaðan úrslita...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 19:45

Clippers vann oddaleikinn gegn Memphis

LA Clippers er komið áfram í 2. umferð í úrslitakeppni NBA eftir magnaðan sigur, 82-72, á ...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 10:59

Lakers vann oddaleikinn | Þreföld tvenna hjá Rondo

Los Angeles Lakers komst í aðra umferð í úrslitakeppni NBA í nótt er liðið lagði Denver í ...  

Meira
Körfubolti 12. maí. 2012 22:57

Shouse og Pálína leikmenn ársins í körfuboltanum

Stjörnumaðurinn Justin Shouse og Keflavíkurmærin Pálína Gunnlaugsdóttir voru valdir bestu ...  

Meira
Körfubolti 12. maí. 2012 17:41

James valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar

LeBron James var í dag valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar. Þetta er í þriðja si...  

Meira
Körfubolti 12. maí. 2012 11:31

Memphis tryggði sér oddaleik gegn Clippers

Liðin frá Los Angeles í NBA-deildinni eru ekki að gera sér auðvelt fyrir því þau eru bæði ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 23:22

LeBron James valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar í þriðja sinn

LeBron James, leikmaður Miami Heat, hefur verið valinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildari...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 23:00

Andersen grunaður um vafasamt athæfi

Chris "Birdman" Andersen leikur ekkert með Denver Nuggets þessa dagana eftir að lögreglan ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 21:30

Ewing gæti farið í vinnu hjá Jordan

Lélegasta lið allra tíma í NBA-deildinni, Charlotte Bobcats sem er í eigu Michael Jordan, ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 20:09

Barcelona réð ekki við Spanoulis - Olympiacos í úrslitaleikinn

Það verður gríska liðið Olympiacos sem mætir CSKA Moskvu í úrslitaleiknum í Meistaradeild ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 18:05

CSKA Moskva komst í úrslitaleikinn eftir æsispennandi leik

Rússneska félagið CSKA Moskva tryggði sér sæti í úrslitaleik Euroleague eftir 66-64 sigur ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 09:10

Bulls hent í frí | Lakers á leið í oddaleik

Chicago Bulls var með besta árangur allra liða í deildarkeppni NBA-deildarinnar en þrátt f...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Körfubolti / Ferskir vindar um Höllina