Formúla 1

Ferrari og Mercedes fljótastir á föstudegi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Raikkonen og Rosberg voru fljótastir í dag.
Raikkonen og Rosberg voru fljótastir í dag. Vísir/Getty
Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins, liðsfélagi hans, Sebastian Vettel varð annar. Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á seinni æfingunni og liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð annar.

Fyrri æfingin í Barein í dag er ekki áreiðanleg heimild um væntanlegan framgang mála um helgina. Ástæðan er sú að æfingin fer fram yfir heitasta tíma dagsins en tímatakan og keppnin fer fram þegar kólnað hefur. Þetta er fyrsta næturkeppni tímabilsins, hún hefst þegar fer að skyggja.

Brautarhitinn varð mestur 54°C. Raikkonen var tveimur tíundu á undan Vettel. Mercedes mennirnir voru greinilega að gera eitthvað annað en setja hraðan tíma. Rosberg varð 15. og Hamilton 16.

Fernando Alonso á McLaren kom sér upp í sjöunda sæti. Alosno var fljótastur á tímabili sem er í fyrsta skipti fyrir liðið í ár.

Neistaflug hjá Daniel Ricciardo á Red Bull.Vísir/Getty
Á seinni æfingunni var farið að dimma og brautin hafði kólnað. Aðstæður voru orðnar meira eins og þær verða um miðbik keppninnar.

Hamilton var einum tíunda úr sekúndu á eftir Rosberg. Raikkonen og Vettel í Ferrari voru þar á eftir.

Vettel lenti í bremsubilun í beygju eitt þegar hann var að koma út af þjónustusvæðinu. Hann lenti í samstuði við Sergio Perez á Force India. Vettel fór til að biðja Perez afsökunnar strax að æfingu lokinni.

Mercedes virðist ekki hafa gríðarlegt forskot á Ferrari í Barein. Keppnishraði Ferrari er jafnvel meiri ef dæma má af æfingum dagsins.

Tímatakan á morgun og keppnin á sunnudaginn ættu því að vera afar spennandi. Bein útsending frá tímatökunni hefst á Stöð 2 Sport 3 klukkan 14:50 á morgun. Keppnin er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport frá klukkan 14:30 á sunnudaginn.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort af brautinni í Barein.


Tengdar fréttir

Hamilton hraðastur í dag

Lewis Hamilton var hraðastur á báðum æfingum dagsins fyrir kínverska kappaksturinn sem fram fer á Sjanghæ brautinni um helgina.

Hamilton á ráspól í Kína

Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji.

Bílskúrinn: Sögur af Sjanghæ

Lewis Hamilton snéri aftur á efsta þrep verðlaunapalsins í Kína. Fast á hæla hans fylgdi pirraður liðsfélagi hans, Nico Rosberg. Allt er þá orðið eðlilegt aftur í Formúlu 1.

Rosberg: Lewis ók fáránlega hægt

Hver sagði hvað eftir keppnina í Kína? Lewis Hamilton vann. Þetta var keppni liðsfélaga enda vann Mercedes og Ferrari var þar rétt á eftir og svo kom Williams.

Lewis Hamilton kóngurinn í Kína

Lewis Hamilton var afar sannfærandi í Mercedes bílnum í dag og það virtist enginn geta ógnað honum af neinni alvöru. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×