Fótbolti

Fernando Torres lánaði Mourinho klippigræjurnar sínar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jose Mourinho.
Jose Mourinho. Mynd/NordicPhotos/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, grínaðist með nýju klippinguna sína á blaðamannafundi fyrir leik Chelsea og Basel í Meistaradeildinni.

Leikurinn fer fram á St. Jakob-Park í Basel í kvöld og Chelsea-menn geta með sigri tryggt sér sæti í sextán liða úrslitum keppninnar.

Mourinho var að sjálfsögðu spurður út í nýju greiðsluna á fundinum og jafnfram um það hver hefði snoðað hann.

„Ég gerði þetta sjálfur á æfingasvæðinu. Ég fékk klippigræjurnar hans Fernando (Torres) lánaðar og rakaði mig sjálfur fyrir framan spegilinn. Ég er bara ánægður með útkomuna og þetta var líka ódýrt," sagði Jose Mourinho í léttum tón.

Jose Mourinho var þó ekki alveg rólegur um hvað eiginkonan fyndist um nýju greiðsluna.

„Ég sendi frú Mourinho mynd af mér áður en ég kom til að vera viss um að hún myndi hleypa mér inn. Henni fannst ekkert að þessu," sagði Mourinho brosandi og uppskar hlátur frá mörgum blaðmannamanna sem voru mættir á fundinn.

Mynd/AFP
Mynd/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×