Enski boltinn

Ferguson: Rétt að ráða Moyes

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Moyes og Alex Ferguson á hliðarlínunni árið 2013.
David Moyes og Alex Ferguson á hliðarlínunni árið 2013. Vísir/Getty
David Moyes entist í aðeins átta mánuði í starfi sem eftirmaður Alex Ferguson hjá Manchester Unted. Ferguson segir að það hafi verið engu að síður rétt ákvörðun að ráða Moyes.

„Við gerðum það besta í þeim aðstæðum sem við vorum í,“ sagði Ferguson í nýrri heimildamynd sem verður frumsýnd í breska ríkissjónvarpinu, BBC, á sunnudagskvöld.

Ferguson var við stjórnvölinn hjá United í 26 ár og hætti árið 2013. Undir stjórn hans átti United gríðarlegri velgengni að fagna en félagið hefur átt í vandræðum síðan.

„Ég tel að við höfum ekki gert mistök. Við völdum góðan fótboltamann. Þetta gekk bara því miður ekki upp fyrir David,“ sagði Ferguson og bætti við að aðrir sem komu til greina voru ekki lausir.

„Jose Mourinho var á leiðinni aftur til Chelsea, Carlo Ancelotti var að fara til Real Madrid, Jürgen Klopp hafði endurnýjað samning sinn við Dortmund og Louis van Gaal ákvað að fylga Hollandi á HM.“

Ferguson greindi enn fremur frá því að hann hafi fundað með Pep Guardiola yfir kvöldverði í september 2012, þegar hann hafði enn ekki tekið ákvörðun um að hætta hjá United.

„Ég bað hann um að hringja í mig og láta mig vita hvað hann ætlaði að gera. Ég var þá að reyna að hugsa fram í tímann. En ég fékk ekkert svar og hann fór til Bayern München.“

Hann segir að hefði Ryan Giggs ekki enn verið að spila í kringum fertugt hefði Moyes líklega aldrei fengið tilboðið frá United.

„Ef Ryan Giggs hefði hætt 35 ára gamall þá hefði ég líklega gert hann að aðstoðarmanni mínum. Þá hefði verið tilbúinn í starfið. En ég myndi aldrei biðja leikmann um að hætta.“

Giggs er í dag aðstoðarmaður Louis van Gaal knattspyrnustjóra og segir Ferguson að Giggs muni taka við starfinu af honum. Það hefur félagið þó ekki staðfest.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×