Innlent

Ferðamenn slógust í rútu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Erill var hjá lögreglu í nótt.
Erill var hjá lögreglu í nótt. Vísir/GVA
Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í nótt. Annars vegar slógust erlendir ferðamenn í rútu og svo var ráðist á ferðamann og úr honum sleginn tönn.

Í dagbók lögreglu kemur fram að mikill erill hafi verið í nótt en í alls gistu sjö manns fangageymslur. Einn þeirra er grunaður um fjölda innbrota að undanförnu og var gripinn í nótt.

Þá komu upp nokkur heimilisofbeldismál. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×