Viðskipti innlent

Ferðamenn orðnir milljón á árinu

Sæunn Gísladóttir skrifar
Heildarfjöldi ferðamanna í septembermánuði hefur meira en fimmfaldast frá árinu 2002.
Heildarfjöldi ferðamanna í septembermánuði hefur meira en fimmfaldast frá árinu 2002. Vísir/Pjetur
Fjöldi ferðamanna sem komið hafa til Íslands á árinu er nú kominn yfir eina milljón. Það sem af er ári hafa 1.010.186 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 222.087 fleiri en á sama tíma í fyrra. Um er að ræða 28,2% aukningu milli ára. Um 123 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í september síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 35 þúsund fleiri en í september á síðasta ári. Aukningin nemur 39,4% milli ára og hefur hún ekki mælst svo há milli ára í september frá því Ferðamálastofa hóf talningar, segir í tilkynningu.

Aukningin hefur verið alla mánuði ársins milli ára, eða 34,5% í janúar, 34,4% í febrúar, 26,8% í mars, 20,9% í apríl, 36,4% í maí, 24,2% í júní, 25,0% í júlí og 23,4% í ágúst.

71% ferðamanna í september af tíu þjóðernum

Um 71% ferðamanna í september síðastliðnum voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 22,7% af heildarfjölda og næstfjölmennastir voru Þjóðverjar (10,3%) og Bretar (10,3%). Þar á eftir fylgdu síðan Kanadamenn (5,5%), Norðmenn (4,5%), Frakkar (4,1%), Danir (4,0%), Svíar (3,7%), Kínverjar (3,5%) og Spánverjar (2,8%).

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Bretum, Þjóðverjum, Kanadamönnum og og Kínverjum mest milli ára í september en 12.643 fleiri Bandaríkjamenn komu í september í ár en í fyrra, 3.294 fleiri Bretar, 2.734 fleiri Þjóðverjar, 2.347 fleiri Kanadamenn og 2.342 fleiri Kínverjar. Þessar fimm þjóðir báru uppi 67,2% aukningu ferðamanna í september. Dönum, Norðmönnum og Rússum fækkaði hins vegar í september í ár frá því í fyrra.

Heildarfjöldi ferðamanna í septembermánuði hefur meira en fimmfaldast frá árinu 2002 og munar þá mestu um aukningu N-Ameríkana sem hafa nærri áttfaldast og þeirra sem flokkast undir ,,annað“ sem hafa tífaldast. Ferðamenn frá Mið- og S-Evrópu og Bretlandi hafa nærri þrefaldast og Norðurlandabúar ríflega tvöfaldast.

Frá áramótum hafa 336.934 Íslendingar farið utan eða 38.246 fleiri en á sama tímabili árið 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×