Innlent

Ferðamenn hætt komnir í Reynisfjöru: „Þetta er næstum því daglegur viðburður“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Aldan kom mjög skyndilega og hrifsaði manninn með sér.
Aldan kom mjög skyndilega og hrifsaði manninn með sér.
Tveir ferðamenn voru hætt komnir í Reynisfjöru í dag þegar alda kom skyndilega að landi. Annar þeirra lenti í öldunni en kom sér að landi með herkjum. Hinn lá í flæðamálinu en brást snaggaralega við.

Leiðsögumaðurinn Teitur Þorkelsson var staddur með hóp í fjörunni og tók myndskeiðið sem sjá má hér að neðan. Hann segist hafa verið í Reynisfjöru í um klukkutíma í dag og að minnsta kosti fimm ferðamenn hafi blotnað eftir að hafa lent í öldu.

„Þetta er næstum því daglegur viðburður,“ segir Teitur sem kemur reglulega í Reynisfjöru með hópa. Hann leggur sjálfur áherslu á að fræða sína hópa vel um hætturnar sem leynast í fjörunni.

Það er ýmislegt gert fyrir hina fullkomnu mynd.Mynd/Teitur Þorkelsson
„Maður tekur alltaf ræðuna og varar fólk við. Svo þarf maður að fylgjast með þeim því að þetta getur komið úr öllum áttum. Maður varar fólk við og segir þeim hryllingssögur,“ segir Teitur.

Það er hans upplifun að ferðamenn sem séu á eigin vegum séu líklegri til þess að gera sér ekki grein fyrir þeim hættum sem eru fyrir hendi í Reynisfjöru.

Sjá einnig: Þrjú banaslys í Reynisfjöru á áratug: „Einhver þarf að bera ábyrgð á staðnum“

Þýsk kona lést fyrr í mánuðinum í Kirkjufjöru skammt frá Reynisfjöru. Stór alda féll á hana og fjölskyldu hennar. Móðirin lenti í briminu og fer út með soginu.

Sett hafa verið upp skilti til þess að vara þá sem koma í Reynisfjöru við þeim hættum sem eru fyrir hendi og að mati Teits er allur gangur á því hvort að ferðamenn skoði skiltin eða ekki.

„Það eru mörg skilti á leiðinni niður og svo eru margir sem skoða þetta ekki. Ég sá fólk skoða skiltin þar sem meðal annars stendur recent tourist death en það eru alltaf einhverjir sem skoða þetta ekki neitt.“


Tengdar fréttir

Segir erfitt að meta hvort að viðvörunarskiltin geri sitt gagn

Víðir Reynisson lögreglufulltrúi og verkefnastjóri almannavarna hjá lögreglunni á Suðurlandi segir það mjög spennandi að sjá niðurstöður rannsóknar sem þær Þórdís Pétursdóttir og Sigurlaug Rúnarsdóttir nemendur í ferðamálafræði við Háskóla Íslands vinna að en lokaverkefni þeirra í náminu snýr að öryggi ferðamanna í Reynisfjöru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×