Innlent

Ferðamenn áfjáðir í íslenskt maríjúana

Jakob Bjarnar skrifar
Svo virðist sem íslensk framleiðsla á maríjúana sé rómuð meðal þeirra sem slíkt reykja.
Svo virðist sem íslensk framleiðsla á maríjúana sé rómuð meðal þeirra sem slíkt reykja.
Svo virðist sem íslenskt maríjúana, eða gras, sér rómað víða um heim og eftirsótt. Það er ef marka má tilkynningu sem einn þeirra sem hefur milligöngu um slíkt setti nú rétt í þessu inn á Facebook-síðu þar sem saman koma áhugamenn um kannabis.

„Ég fæ tonn af fyrirspurnum næstum daglega frá túristum í leit að góðu grasi. Ef einhverjir hér vilja þau viðskipti vinsamlega hafið þá samband við mig svo ég geti látið þá hafa númerið ykkar,“ segir viðkomandi alls ófeiminn. Vart þarf að taka það fram að kannabisneysla, kannabisframleiðsla og kannabissala er bönnuð lögum samkvæmt á Íslandi.

En viðkomandi útskýrir að margir þeirra sem setja sig í samband við sig og vilja kaupa íslenskt gras, eins og það er kallað, séu frá ríkjum og löndum þar sem kannabis er löglegt.

„Og hafa frétt af góða grasinu á Íslandi og eru spenntir eftir að prófa,“ segir hinn glaðbeitti maríjúanamaður.

Það virðist því svo að ekki sé aðeins sé uppgangur í efnahagslífinu því hinu opinbera vegna aukinnar komu ferðamanna sem áætlað er að verði 1,7 milljón í ár heldur virðist svarti markaðurinn og ólögleg starfsemi njóta þess líka. Svo um munar.

Vísir reyndi að leita upplýsinga um hvort einhver tilvik af þessu tagi, þar sem um er að ræða íslenskt gras og ferðamenn, eða rannsókn hafi farið fram hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á slíku, en enginn til þess bær að varpa ljósi á það var viðlátinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×