Innlent

Ferðamaðurinn segist hafa verið nakinn því honum var heitt og með magaverk

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Meint brot mannsins átti sér stað á Selfossi.
Meint brot mannsins átti sér stað á Selfossi. vísir/pjetur
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að ísraelskur ferðamaður sem grunaður er um blygðunarsemisbrot á Selfossi fyrr í mánuðinum skuli sæta farbanni til 3. október næstkomandi. Lögreglan á Suðurlandi fór fram á gæsluvarðhald yfir manninum en því var hafnað.

Í úrskurði héraðsdóms sem birtur er með dómi Hæstaréttar kemur fram að maðurinn hafi viðurkennt að hafa verið nakinn í bíl sínum við íþróttahús á Selfossi um hádegisbil þann 5. september síðastliðinn. Hann neitar því hins vegar að hafa verið með hendur á kynfærum sínum og stundað sjálfsfróun heldur segist hann hafa verið með hendur á lærum sér. Hann hafi verið nakinn og með hendur á lærum sér því honum var heitt og hann var með magaverk, að því er fram kemur í úrskurðinum sem vitnar í framburð mannsins.

Að mati lögreglustjóra eru skýringar mannsins á háttsemi hans ótrúverðugar. Þá telur lögreglan það einnig ótrúverðugt að maðurinn skuli ekki hafa vitað að hann væri á bílastæði sem væri nálægt grunnskóla. Honum hafi þvert á móti mátt vera „fulljóst að hann væri á stað þar sem vænta hafi mátt umferðar skólabarna, sérstaklega í ljósi þess að samkvæmt upplýsingum lögreglu mun atburðinn hafa átt sér stað um hádegisbil [...]“ segir í úrskurði héraðsdóms.

Lögreglustjóri metur það sem svo að „með hliðsjón af eðli brots kærða, grófleika þess og nálægð við grunnskóla, íþróttasvæði og framhaldsskóla telur lögreglustjóri auk þess hættu á áframhaldandi brotum af hálfu kærða. Á myndbandsupptöku, sem ungmenni sem leið áttu hjá tóku upp, megi sjá kærða liggja allsnakinn í sæti bifreiðar með hendur á kynfærum sínum.“

Með tilliti til þess að maðurinn sé ferðamaður hér á landi og stundi hvorki vinnu hér né eigi fjölskyldu á Íslandi eru taldar líkur á að hann reyni að komast úr landi. Hann mun því vera í farbanni, eins og áður segir, til 3. október næstkomandi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×