Innlent

Ferðamaður villtur á Heklu

Tryggvi Páll Tryggvsaon skrifar
Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli leita mannsins.
Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli leita mannsins. Vísir
Björgunarsveitir frá Hvolsvelli og Hellu hafa verið kallaðar út vegna erlends ferðamanns sem er villtur á Heklu. Maðurinn var á göngu með föður sínum en þeir urðu viðskila á fjallinu fyrr í dag.

Maðurinn hafði samband við Neyðarlínu og náði að koma þeim skilaboðum áleiðis að hann væri staddur á eldfjalli áður en sambandið rofnaði. Stuttu seinna náði hann símasambandi við föður sinn sem beið hans á bílaplani við rætur Heklu og kallaði faðir mannsins eftir aðstoð.

Björgunarsveitir frá Hvolsvelli og Heklu leita nú mannsins en ekki hefur gengið að koma svokölluðum RescueMe boðum til mannsins. Talið er að sími ferðamannsins sé straumlaus en sé RescueMe boðum svarað berast nákvæmar upplýsingar um staðsetningu símans til þeirra sem boðin senda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×