Innlent

Ferðamaður villtist í fjallgöngu

Vísir
Erlendur  ferðamaður sem björgunarsveittamenn leituðu að við Hoffell á sunnanverðum Austfjörðum í gærkvöldi, fanst heill á húfi í vesturhlíðum Efstafellsgils um klukkkan tíu í gærkvköldi.

Var hann þá orðinn villtur í kalsaveðri og niðamyrkri. Hann og kona hans höfðu lagt bíl sínum í grennd við fjallið og hafið göngu, en brátt snéri konan við og fór aftur að bílnum, en maðurinn hélt áfram.

Undir kvöldmat var farið að óttast um hann og voru björgunarsveitirnar þá kallaðar út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×