Innlent

Ferðamaður brenndist á fæti

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Grunnavík er lítil vík í utanverðu fjarðarmynni Jökulfjarða.
Grunnavík er lítil vík í utanverðu fjarðarmynni Jökulfjarða. Mynd/Loftmyndir ehf.
Björgunarskipið Gunnar Friðriksson á Ísafirði er nú á leið í Grunnavík í Jökulfjörðum.

Skipið er að sækja ferðamann sem brenndist á fæti þegar hann fékk heitt vatn yfir sig.

Björgunarskipið Gunnar FriðrikssonVísir/Pjetur
Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu er björgunarsveitin á Bolungarvík einnig á leið á staðinn. Sjúkraflutningamaður er um borð.

Gert er ráð fyrir að fyrsta björgunarfólkið verði komið á staðinn nú um hádegi.

Grunnavík er lítil vík í utanverðu fjarðarmynni Jökulfjarða. Þar er sumarábúð og rekin ferðaþjónusta að Sútarabúðum yfir sumarið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×