Ferðagufubað Hannesar til sölu á netinu 29. nóvember 2008 08:30 Ferðagufubaðið Total Sauna er til sölu á vefsíðunni jml.com og geta áhugasamir fest kaup á þessu tæki fyrir rúmlega tuttugu þúsund krónur. Hannes, pabbi Ólafs Ragnars, selur þetta í góðri trú í Dagvaktinni. „
Jón Gnarr rakst á þetta fyrirbæri í þýskum sjónvarpsmarkaði og sagði okkur frá því. Við vorum búnir að velta því fyrir okkur nokkuð lengi hvað Hannes, pabbi Ólafs Ragnars, gæti verið að selja og þegar við sáum þetta hjá Jóni vorum við ekki í nokkrum vafa um að þetta væri málið," segir Ragnar Bragason, leikstjóri Dagvaktarinnar. Ferðagufubaðið sem Hannes selur í Dagvaktinni hefur vakið mikla kátínu meðal áhorfenda. Eflaust hafa einhverjir hlegið að þessari tilhugsun; að til væri ferðagufubað. En það er semsagt til og er meðal annars til sölu á vefsíðunni jml.com. Tækið er ekkert sérstaklega dýrt, ekki einu sinni miðað við núverandi gengi íslensku krónunnar, en áhugasamir geta fest kaup á því fyrir rúmar tuttugu þúsund krónur í gegnum vefverslun jml.com. Hægt er að pakka Total Sauna saman þannig að úr verður lítill kassi sem hægt er að geyma á fyrirferðarlítinn máta. Og taka síðan fram þegar þannig liggur á viðkomandi. Fram kemur á vefsíðu JML að gufubaðið nýtist vel fyrir þá sem vilja hugsa um línurnar. Ekki sé heldur verra að horfa á sjónvarpið á meðan menn láta streituna líða úr sér. Ragnar segir að þeir hafi pantað sér tvö eintök fyrir þáttaröðina og að Pétur Jóhann hafi verið sá eini sem hafi fengið að prófa. „Ég held að þetta sé stórhættulegt, allavega varð Pétur Jóhann eldrauður á rassinum. Þetta er náttúrlega bara eitthvert tjald utan um rafmagnsketil," útskýrir Ragnar. Leikstjórinn viðurkennir hins vegar að hafa ekki hugmynd um hvar tækin séu niðurkomin. „Ætli einhverjir í leikmunadeildinni sitji ekki bara á þessu einhvers staðar."
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Fleiri fréttir Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Sjá meira