Menning

Fer með áhorfendur í huglægt ferðalag

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Myndir Navarros eru á mörkum ímyndunar og veruleika.
Myndir Navarros eru á mörkum ímyndunar og veruleika.
Spænski listamaðurinn Cayetano Navarro ferðast mikið og flest verka hans eru tengd upplifun hans af ferðalögum. Á sýningu sem hann opnar í Gerðubergi á fimmtudaginn klukkan 18 og nefnist Walking around Iceland X58 sýnir hann ljósmyndir, klippimyndir, myndbönd og lágmyndir.

„Ég reyni að túlka hvaða augum gestir og heimamenn líta íslenska náttúru og fer með áhorfendur í huglægt ferðalag.

Öll upplifum við umhverfið á mismunandi hátt og ekki síst landslag. Svo eiga minningar okkar og tilfinningar stóran þátt í skynjuninni,“ segir hann.





Cayetano Navarro er fæddur í Alicante á Spáni. Hann útskrifaðist af myndlistabraut árið 2007 frá Universidad Miguel Hernández og var meðal þeirra tíu sem hlutu fyrstu einkunn. Ári síðar lauk hann námi í kennsluréttindum frá sama háskóla.

Hann kveðst hafa átt tíðar ferðir milli Íslands og heimalandsins undanfarin ár og upp á síðkastið búið að mestu í Þykkvabæ, sem ráðsmaður hjá Júlíusi Má Baldurssyni sem rekur stærsta landnámshænsnabú landsins.

Heimasíða listamannsins er cayetanonavarro.es.

Sýningin Walking around Iceland X58 er opin virka daga milli klukkan 9 og 18 og um helgar milli 13 og 16 og stendur til 19. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×