Innlent

Fer fyrir efnahagsumbótum

Palaniappam Chidambaram hefur gegnt fjármálaráðherraembættinu í Indlandsstjórn síðan í maí 2004. Hann hefur þó áður setið í stjórninni, var meðal annars fjármálaráðherra 1996-1998.



Hann er eins og forsætisráðherrann Manmohan Singh í Kongress-flokknum og er af mörgum álitinn líklegur arftaki Singhs. Sem fjármálaráðherra fylgir hann eftir efnahagsumbótum þeim sem Singh hóf í fjármálaráðherratíð sinni árið 1991.



Ásamt Singh og Montek Singh Ahluwalia, varaformanni áætlunarnefndar Indlandsstjórnar, er Chidambaram lykilmaður í því sem indverska viðskiptapressan kallar „draumalið“ efnahagsmála í Indlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×