Fer fyrir borgarráð í næstu viku 10. febrúar 2012 06:15 Ólafur F. Magnússon varð borgarstjóri eftir að hafa gengið til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn í borginni í janúar 2008. Fréttablaðið/Vilhelm
Borgarráði verður í næstu viku kynntur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem borginni er gert að greiða Frjálslynda flokknum tæplega 3,4 milljónir króna með vöxtum. Dómurinn er til kominn vegna framlags sem ranglega rann til Borgarmálafélags F-lista, sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi oddviti listans, hafði stofnað. Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segist enn vera að fara yfir dóminn og engrar ákvörðunar að vænta um viðbrögð við honum fyrr en hún hafi kynnt hann borgarráði og um hann fjallað á þeim vettvangi. „Ég hef ekki enn haft færi á að kynna dóminn í borgarráði en það verður gert í næstu viku,“ segir Kristbjörg, sem kveðst enn vera „að melta dóminn“ og því ekki komin með tillögu að viðbrögðum við honum eða hvort Borgarmálafélag F-listans verður krafið um endurgreiðslu á þeim fjármunum sem til þess runnu. „Fyrst þarf vitanlega að taka afstöðu til þess hvort málinu verði áfrýjað. Á því ræðst hvort aðrar ákvarðanir bíða,“ segir Kristbjörg. Verði málinu áfrýjað til Hæstaréttar segir hún þá vinnu fá athyglina alla, enda ráði þá niðurstaða þess máls hvað gert verði í framhaldinu. - óká
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira