Fótbolti

Fer ekki í neina fýlu þótt hann fái ekki að spila

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rúrik með augun á boltanum á æfingu landsliðsins í vikunni.
Rúrik með augun á boltanum á æfingu landsliðsins í vikunni. Vísir/Valli
Rúrik Gíslason er ánægður með vistaskiptin frá FC Kaupmannahöfn yfir til Nürnberg í Þýskalandi í sumar. Hann segir mikinn áhuga á fótbolta í Þýskalandi, margir mæti bæði á leiki og æfingar. Þá hafi liðsfélagarnir tekið honum vel.

„Ég finn fyrir mikilli virðingu frá þeim og er mjög ánægður með þetta,“ segir Rúrik en liðsfélagar hans eru, eins og svo víða, alls staðar að úr Evrópu Nürnberg situr í 10. sæti af 18 liðum í b-deildinni í Þýskalandi. Rúrik hefur spilað alla leikina og segir ástandið á sér frábært.

„Það er mikið æft í Þýskalandi sem hentar mér ágætlega. Ég held ég sé að græða á því og hef sjaldan verið í betra formi.“

Rúrik Gíslason hefur þakkað fyrir sig hjá FCK.vísir/getty
Mun ekki fara í fýlu

Emil Hallfreðsson glímir við meiðsli og einn möguleikinn er sá að Rúrik komi inn á kantinn í hans stað. Hvað heldur hann?

„Ég hef svo sem enga tilfinningu fyrir þessu en gef alltaf kost á mér. Lars og Heimir hafa ekki stigið feilspor í þessari keppni þannig að ég treysti þeim fullkomlega til að velja rétta liðið. Það verður að koma í ljós hvort ég er í því eða ekki. Hvort sem er mun ég ekki fara í neina fýlu.“

Eðli málsins samkvæmt fær um hálfur hópurinn ekki að byrja inn á í leiknum á morgun. Allir nema þrír á bekknum munu ekkert koma við sögu. Leikmenn á borð við Eið Smára Guðjohnsen og Alfreð Finnbogason komu ekkert við sögu í 2-1 sigrinum á Tékklandi.

„Það er alltaf talað um að það sé martröð fótboltamannsins að sitja á bekknum. Við erum bara með svo skýr markmið og erum að vinna að þeim sem hópur. Það nennir enginn að fylgjast með einhvejrum í fýlu,“ segir Rúrik. Mikilvægt sé að halda haus og muna að allir séu saman í þessu. 

Nýtur stundanna með strákunum

Aðspurður hvernig hann stytti sér stundir á milli æfinga og funda með þjálfurum segist Rúrik bara njóta tímans sem hann fái með strákunum.

„Svo erum við Aron (Einar Gunnarsson) að horfa á fína seríu, Narcos um Pablo Escobar. Hún hefur stytt okkur stundirnar hingað til. En þetta er stutt ferð þannig séð og mönnum leiðist ekkert.“

Rúrik segir landsliðshópinn orðinn mjög rótgróinn enda margir leikmenn þar verið lengi saman.

„Þetta er svo heimilislegt sem gerist svo sjaldan hjá félagsliðum jafnvel þótt þú sért með þeim á hverjum einasta degi. Hérna ertu búinn að vera í sjö til átta ár, saman í u17, u19 og u21. Allt sömu strákarnir sem eru orðnir mjög nánir vinir manns.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×