Innlent

Fentanýl á Menningarnótt: Lögreglu reynist erfitt að hafa uppi á vitnum að atburðum næturinnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson beytti skyndihjálp á vin sinn í porti við spilastofuna Fredda í miðbænum.
Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson beytti skyndihjálp á vin sinn í porti við spilastofuna Fredda í miðbænum. Vísir/Hanna
Lögregla hefur átt í vandræðum með að hafa uppi á vitnum að atburðum aðfaranótt sunnudags að þegar ungur maður lést og annar missti meðvitund í porti við spilastofuna Fredda í Þingholtsstræti. Sá fyrrnefndi fannst látinn á heimili sínu.

Grunur leikur á því að mennirnir tveir, sem voru vinir, hafi neytt lyfsins fentanýl um kvöldi. Bæði málin eru til rannsóknar hjá lögreglu.

Fréttablaðið greindi frá því í morgun að rapparinn Gísli Pálmi hefði beitt skyndihjálp á umræddan vin í portinu við Fredda og héldu sjúkraliðar uppteknum hætti þegar þeir komu á vettvang. Komst maðurinn til meðvitundar og var útskrifaður af sjúkrahúsi á sunnudeginum.

Runólfur Þórhallsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglu, segir í samtali við fréttastofu að rætt hafi verið við aðila bæði í gær og í dag. Erfiðlega gangi að finna vitni.

Gísli Pálmi var vinur beggja.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var Gísli Pálmi með báðum mönnunum fyrr um kvöldið, var sá er missti meðvitund meðal annars með honum á sviði á tónleikum fyrr um kvöldið. Gísli Pálmi hefur ekki svarað símtölum fréttastofu en hann mun vera staddur erlendis. Samkvæmt heimildum Vísis hefur lögregla ekki yfirheyrt hann enn sem komið er.

Athygli vekur að lögreglu hefur reynst erfitt að hafa uppi á vitnum að atburðum aðfaranætur sunnudags en fjölmennt var í miðbæ Reykjavíkur. Er um kunnuglegt stef að ræða er við kemur alvarlegum atburðum tengdum fíkniefnaneyslu.

Foreldrar stúlku sem lést af margföldum dauðaskammti Mollý, eða MDMA, í nóvember fyrir tæpum þremur árum hafa enn engar upplýsingar fengið frá þeim sem voru með henni umrætt skipti. Þó var um fjölmennt partý að ræða.

Faðir stúlkunnar hefur meðal annars stigið fram og biðlað til Gísla Pálma að upplýsa hvað gerðist en stúlkan fannst látin á heimili hans í vesturbæ Reykjavíkur. Gísli Pálmi vildi ekkert tjá sig um málið við Vísi í júní síðastliðnum.

Viðtal við föðurinn má sjá hér að neðan.


Sem fyrr segir leikur grunur á því að mennirnir, sá sem lést og sá sem varð meðvitundarlaus á Menningarnótt, hafi báðir neytt fentanýls umrætt kvöld. Tvö dauðsföll hér á landi á árinu, að frátöldu því sem varð á sunnudaginn, má rekja til fentanýls.



Kolbeinn Guðmundsson yfirlæknir Lyfjastofnunnar segir Fentanýl mjög hættulegt sé það í röngum höndum.VÍSIR
Yfirlæknir Lyfjastofnunar segir mikið áhyggjuefni að verið sé að misnota verkjalyfið hér á landi. Lyfið er eitt sterkasta verkjalyf á markaðnum en það er hundrað sinnum sterkara en morfín og fimmtíu sinnum sterkara en heróín.

Lyfið hefur slævandi áhrif og er ávanabindandi. Þeir sem misnota lyfið bræða plástrana og reykja þá eða sprauta efnunum í sig.

Lyfið er ætlað fólki sem glímir við langvinna verki og er til að mynda notað af krabbameinssjúklingum við verkjum, sem og við líknandi meðferð.

Runólfur hjá fíkniefnadeild lögreglu segir rannsókn beggja mála í fullum gangi.



Tengdar fréttir

Á sviðinu með Gísla Pálma fyrr um kvöldið

Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson beitti skyndihjálp á vin sinn er hann missti meðvitund aðfaranótt sunnudags. Annar maður lést sama kvöld. Lögregla rannsakar hvort lyfið fentanýl hafi komið við sögu í báðum málum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×