Fótbolti

Fengu samtals 59 leikja bann fyrir slagsmál | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Slagsmálin í göngunum voru ótrúleg.
Slagsmálin í göngunum voru ótrúleg. mynd/skjáskot
Leikmenn úr ítölsku 5. deildar liðunum Vittoria og Paterno fengu samtals 59 leikja bann fyrir átök þeirra á milli í leikmannagöngunum þegar þau mættust á dögunum.

Staðarblaðið Corriere di Ragusa birti myndband úr öryggismyndavél sem staðsett var í göngunum og má sjá að mönnum var ansi heitt í hamsi.

Leikmenn heimaliðsins Vittoria fengu samtals 36 leikja bann en gestirnir fengu 23 leiki. Bæði lið tapa leiknum, 3-0, og þurfa bæði að greiða 6.000 evru sekt.

Framkvæmdastjóri heimaliðsins er ósáttur við úrskurð aganefndar ítalska knattspyrnusambandsins og ætlar að áfrýja dómnum.

Þessi ótrúlegu slagsmál má sjá í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×