Innlent

Fengu engan frið fyrir drukkinni konu

Gissur Sigurðsson skrifar
Konan linnti ekki látunum og varð lögreglan að grípa til þess ráðs að handtaka hana.
Konan linnti ekki látunum og varð lögreglan að grípa til þess ráðs að handtaka hana. visir/valli
Ölvuð kona tók upp á því á fimmta tímanum í nótt að hringja látlaust í Neyðarlínuna að tilefnislausu og linnti ekki látum þrátt fyrir ítrekaðar beinir starfsmanna þar. Leituðu þeir loks til lögreglu, sem hafði uppi á konunni þar sem vitað var úr hvaða númeri hún hringdi, og var hún handtekin. Hún sefur nú úr sér ölvímuna í fangageymslum.

Viðurlög liggja við svona háttsemi enda getur hún tafið fyrir að fólk í neyð nái tafarlaust sambandi við Neyðarlínuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×