Innlent

Fengu ekki tíma til að ræða fall sparisjóðsins

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Óskar
Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundaði í dag um málefni Sparisjóðs Vestmannaeyja og „þvingaðan samruna við Landsbankans.“ Stjórnin telur að margt í aðdraganda falls sparisjóðsins orki tvímælis. Stjórnin telur að tímafrestur Fjármálaeftirlitsins hafi verið of skammur, ekki hafi tími verið gefinn til endurfjármögnunar og að ekki hafi verið gætt jafnræðis við öflun upplýsinga, svo eitthvað sé nefnt.

Stjórnin segir óumdeilt að nauðsynlegt hafi verið að grípa til ráðstafana til að styrkja hag sjóðsins. Hins vegar hafi FME gefið sparisjóðnum allt of knappan tíma til að bregðast við vandanum.

„Öllum er ljóst að sá vandi sem steðjaði að sparisjóðnum var engin landsvá eins og þegar íslenska bankakerfið hrundi haustið 2008.  Líkur eru einnig fyrir því að þessi ákvörðun FME hafi aukið líkur á áhlaupi innstæðueiganda á Sparisjóðinn.“ Þetta kemur fram í afgreiðslu bæjarstjórnarinnar frá því í dag.

Þar að auki segir að stjórnendur sparisjóðsins hafi ekki fengið tíma til að gera rekstraráætlanir eða huga að endurreisn hans.

Fyrir fundi bæjarstjórnar lá minnisblað bæjarstjóra um málið. Afgreiðslu bæjarstjórnarinnar í heild sinni má sjá hér að neðan:

1. Tímafrestur til aðgerða var of skammur.

Þegar ljóst var að fjárhagur sjóðsins næði ekki lögbundnum lágmörkum eigin fjár lá fyrir að grípa þurfti til ráðstafana til að styrkja hag sjóðsins.  Um það er ekki deilt.  Það er ekki heldur deilt um að ríkið hefur með yfirlýsingum sínum ábyrgst allar innlendar innistæður í íslenskum bönkum.

Í ljósi þessa er með öllu óskiljanlegt að FME skuli setja svo lítilli fjármálastofnun sem Sparisjóði Vestmannaeyja er svo knappan tíma sem gefinn var til að bregðast við aðsteðjandi vanda.   Öllum er ljóst að sá vandi sem steðjaði að sparisjóðnum var engin landsvá eins og þegar íslenska bankakerfið hrundi haustið 2008.  Líkur eru einnig fyrir því að þessi ákvörðun FME hafi aukið líkur á áhlaupi innstæðueiganda á Sparisjóðinn.

2. Ekki gefinn tími til að stjórn ynni með eigendum sínum að endurfjármögnun

Stjórn og stjórnendum Sparisjóðsins gafst enginn tími til að gera rekstraráætlanir eða vinna annan undirbúning sem nauðsynlegur var til að kynna núverandi stofnfjáreigendum framtíðarmöguleika sjóðsins með það í huga að leggja sjóðnum til nægjanlegt fjármagn til endurreisnar hans.

Því gafst ekkert nauðsynlegt ráðrúm til umræðu og undirbúnings undir mögulega endurreisn sjóðsins.

3. Ekki er gætt jafnræðis við öflun upplýsinga

Bæjarstjórn telur með öllu óskiljanlegt að Landsbankanum, einum stofnfjárhafa, hafi verið veitt heimild til að fara með starfsmenn sína inn í sjóðinn síðastliðinn miðvikudag til að kynna sér gögn sem lutu að útlánum sjóðsins.  Þetta er ekki bara óskiljanlegt út frá sjónarmiðum jafnræðis gagnvart stofnfjárhöfum, heldur gagnvart almennum samkeppnisjónarmiðum.

4. Beiting valds af hálfu ríkisins

Íslenska ríkið var stærsti eigandinn í Sparisjóði Vestmannaeyja.  Með eignarhlutann fór Bankasýsla ríkisins sem er á vegum ríkisins. Eftirlitsaðili með starfsemi fjármálastofnana er Fjármálaeftirlit ríkisins sem rekið er af íslenska ríkinu.  Heimild til mögulegs samruna var kominn undir Samkeppniseftirlitinu, sem er stjórnsýslustofnun rekin af íslenska ríkinu.  Mögulegur kaupandi að Sparisjóði Vestmannaeyja var Landsbankinn hf. sem er í nálega fullri eigu ríkisins.  Allt umlykjandi í málinu er því íslenska ríkið.

Í ljósi þess að ríkið er allt umlykjandi í málinu þá hlýtur að teljast mikilvægt að þessar stofnanir gæti meðalhófs við meðferð valds síns og hafi ekki með ósanngjörnum hætti og án þess að brýna nauðsyn beri til, alla möguleika af öðrum eigendum Sparisjóðs Vestmannaeyja, til að vinna að lausnum sem væru hagfelldari sparisjóðnum og byggðunum þar sem hann starfar.

Hvað viðvíkur hinum þvingaða samruna við Landsbankann vill bæjarstjórn árétta eftirfarandi:

a.  Í bréfi Landsbankans hf. var um 18 tíma frestur gefinn til að svara.  Vestmannaeyjabæ var með öllu ómögulegt að bregðast við á þeim tímafresti sem gefinn var.  Slíkar upplýsingar bárust Vestmannaeyjabæ kl 19.33 föstudaginn 27. mars.  Vestmannaeyjabær starfar á grundvelli stjórnsýslulaga og sveitarstjórnarlaga og er sem slíkur ekki ályktunarhæfur nema á lögformlegum fundum sem boðað er til með tveggja sólarhringa fyrirvara.  Vestmannaeyjabæ var því ómögulegt að bregðast við á þeim tímafresti sem gefinn var.

b.  Bent er á að í aðdraganda bréfsins hafði Landsbankinn fullt aðgengi að öllum gögnum um Sparisjóð Vestmannaeyja þar með talið lánabók og fl.   Undirritaðir aðilar hafa ekki haft möguleika til þess að kynna sér Sparisjóðinn með þeim hætti.  Þar með var kaupandinn kominn með upplýsingar um umrædda eign, umfram seljendur.  Það verður að teljast hæpin staða þegar seljendur eru settir í þá stöðu að þekkja verr til söluandlagsins en kaupandinn.  Eðlilegt hlýtur að vera að eigendur hefðu fengið svigrúm til að meta verðmætin með sama hætti og mögulegur kaupandi hafði.

c.  Bent er á að skv. tölulið IV í bréfi Landsbankans hf. er það í raun forsenda tilboðsins að Samkeppniseftirlitið hafi veitt samþykki fyrir samruna félaganna án skilyrða, áður en til hans er stofnað.  Slíkir forúrskurðir eru ekki mögulegir skv. núgildandi samkeppnislögum og því óeðlilegt að slík krafa sé sett fram.

d.  Bent er á að umtalsverður vafi er umleikandi endurgjald fyrir stofnfé í Sparisjóði Vestmannaeyja.  Ítrekað er að seljendur hafa ekki haft tök á að kynna sér raunverðmæti Sparisjóðsins.

e.  Bent er á að fyrrum eigendur Sparisjóðsins fá eignarhlut sinn í Sparisjóði Vestmannaeyja greiddan með eignarhluta í Landsbankanum með þvinguðum samruna.  Ekkert óháð mat liggur fyrir um raunverðmat Landsbankans.  Ljóst er að ofmat á verði Landsbankans rýrir hlut fyrrum eiganda Sparisjóðs Vestmannaeyja.

f.  Í ljósi þess sem að framan greinir felur bæjarstjórn bæjarstjóra að falast eftir samstarfi við aðra fyrrum stofnfjáreigendur um að kannað verði með lögmæti framgöngu ríkisins og stofnana þess í því ferli sem að ofan greinir.  Sérstaklega þarf að horfa til þess hvort ríkið hafi við meðferð valds síns með  ósanngjörnum hætti og án þess að brýna nauðsyn bæri til, haft möguleika af öðrum eigendum Sparisjóðs Vestmannaeyja, til að vinna að lausnum sem hugsanlega hefðu verið hagfelldari sparisjóðnum og byggðunum þar sem hann starfar.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir eftirfarandi:

1.       Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að falast tafarlaust eftir því að fengið verði hlutlægt mat á verðmæti Sparisjóðs Vestmannaeyja á þeim tímapunkti þegar hann var á þvingaðan máta sameinaður við Landsbankann hf.  Við matið skal sérstök áhersla lögð á samanburð á lánasafninu árið 2010 eftir endurreisn sjóðsins og 29. mars 2015 þegar þvingaður samruni við Landsbankann gekk í gegn.

2.       Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að kalla tafarlaust eftir lögfræðilegu mati á framgöngu ríkisaðila í tengslum við þau atriði sem rædd eru í minnisblaðinu.  Sérstaklega verði þar hugað að því hvort meðalhófs hafi verið gætt.



Tengdar fréttir

Buðu 110 milljónir í golfvöll í Grímsnesi

Nær fjórum árum eftir að Grímsnes- og Grafningshreppur keypti hálfkaraðan golfvöll á Minni-Borg er hann óseldur. 110 milljóna króna tilboði var nýlega hafnað. Sveitarstjórinn segir ekki lengur litið á landið sem golfvöll. Ekki liggi á að selja.

Landsbankinn að ganga frá kaupum á Sparisjóð Vestmannaeyja

Allt bendir til þess að Landsbankinn gangi frá kaupum á Sparisjóð Vestmannaeyja á morgun. Formlegar viðræður hófust í gær eftir að frestur sem Fjármálaeftirlitið gaf sparisjóðnum til að bæta eiginfjárstöðu sína rann út.

Bæjarstjóri ósáttur með framgöngu FME

Sparisjóður Vestmannaeyja fékk aðeins fjögurra daga frest til þess að skila endurskoðuðum ársreikningi. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, furðar sig á flýtinum og segir að meðalhófs hafi ekki verið gætt hjá Fjármálaeftirlitinu.

Þrjú tilboð bárust í Sparisjóð Vestmannaeyja

Landsbankinn, Arionbanki og hópur innlendra og erlendra fjárfesta hafa hver fyrir sig lýst yfir áhuga á að hefja viðræður við stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja um kaup á sjóðnum. Stjórnin óskaði eftir tilboðum eftir að í ljós kom að sjóðurinn þyrfti að bæta eiginfjárstöðu sína um rúman milljarð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×