Íslenski boltinn

Félög hafa sýnt Bjarna áhuga

Elvar Geir Magnússon skrifar

Gísli Gíslason, formaður meistaraflokksráðs ÍA, staðfesti í samtali við Vísi að félög í Landsbankadeildinni hefðu sýnt áhuga á Bjarna Guðjónssyni. Hann vildi þó ekki gefa upp hvaða félög það væru.

Sögur hafa verið í gangi um að Bjarni væri hugsanlega á förum frá ÍA nú í félagaskiptaglugganum. „Það er okkar meining að hann verði áfram. Við viljum halda honum," sagði Gísli. „Það eru önnur mál sem við erum að vinna í þessa stundina."

Bjarni vildi lítið tjá sig um málið þegar Vísir hafði samband við hann fyrr í dag. „Ég er samningsbundinn ÍA og það yrði mjög erfitt fyrir mig að yfirgefa liðið í þessari stöðu," sagði Bjarni.

Nöfn KR og Vals hafa oftast verið nefnd. Börkur Edvardsson, formaður Vals, sagði að Valur væri ekki að vinna í því að fá Bjarna. „Við erum samt alltaf með opnar dyr fyrir góðum leikmönnum og vissulega er Bjarni hörkuleikmaður. Við erum þó lítið að spá í leikmannamálum núna, við erum bara að undirbúa liðið fyrir Evrópuleik í vikunni," sagði Börkur.




Tengdar fréttir

Bjarni: Eitthvað þurfti að gera

„Það er ekki mitt að taka ákvörðun um þetta en ljóst er að eitthvað þurfti að gera," sagði Bjarni Guðjónsson, fyrirliði ÍA, um þjálfarabreytinguna hjá liðinu. Guðjón Þórðarson var látinn taka pokann sinn og Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir eru að taka við liðinu.

Guðjón Þórðarson rekinn frá ÍA

ÍA hefur fengið leyfi frá FH til að ræða við Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni um að taka við þjálfun liðsins. Guðjón Þórðarson hefur verið rekinn vegna dapurs árangurs á tímabilinu.

Arnar og Bjarki ekki með ÍA í næsta leik

Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir eru að taka við ÍA eins og fram hefur komið. Það er þó ljóst að þeir munu hvorki stýra né leika með liðinu í næsta leik sem er gegn FH, liðinu sem þeir eru að yfirgefa.

Guðjón: Kom mér ekki á óvart

Guðjón Þórðarson sagði í viðtali í hádegisfréttum á Stöð 2 að sú ákvörðun stjórnar ÍA að rifta samningi hans hafi ekki komið honum á óvart.

Bjarki: Þetta er mikil áskorun

Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir eru að taka við þjálfun ÍA. Þeir funda með Skagamönnum í hádeginu og það er fátt sem getur komið í veg fyrir að þeir taki við liðinu að sögn Bjarka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×