Enski boltinn

Fellaini klár í slaginn gegn Everton

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Belginn hárprúði skallar boltann
Belginn hárprúði skallar boltann vísir/getty
Miðjumaðurinn Marouane Fellaini hjá Manchester United hefur jafnað sig á meiðslum og er klár í slaginn gegn sínu gamla liði, Everton, um páskadag.

David Moyes fer með Manchester United á sinn gamla heimavöll Goodison Park og gæti notað Fellainni í 21. sinn á leiktíðinni fyrir Man. Utd.

Belginn 26 ára gamli lék undir stjórn Moyes hjá Everton en hefur átt í vandræðum með að standa undir 27,5 milljón punda vermiðanum á leiktíðinni.

Leikur Everton og Manchester United er klukkan 15:10 á sunnudaginn en Everton á í harðri baráttu um sæti Meistaradeildinni en Man. Utd. á í baráttu um sæti í Evrópudeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×